Page 4 of 7
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 17:33
by Idle
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 18:27
by Gummi P
Ég væri mjög svo til í að vera með í þessari pöntun og fá þennan hér
http://www.midwestsupplies.com/products ... rodID=3478" onclick="window.open(this.href);return false;
en ég bý á Dalvík svo ég yrði að semja um það við þann sem pantar að senda mér þetta eða ég láti einhvern nálgast þetta fyrir mig hjá honum
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 18:40
by Idle
Gummi P wrote:Ég væri mjög svo til í að vera með í þessari pöntun og fá þennan hér
http://www.midwestsupplies.com/products ... rodID=3478" onclick="window.open(this.href);return false;
en ég bý á Dalvík svo ég yrði að semja um það við þann sem pantar að senda mér þetta eða ég láti einhvern nálgast þetta fyrir mig hjá honum
Ég fer norður í september - er ekki alveg með það á hreinu hvort það yrði fyrsta eða önnur helgin - og gæti komið við á Dalvíkinni (hef verið með annan fótinn þar, einn á Akureyri, og þann þriðja í borginni!). Sá möguleiki er a. m. k. fyrir hendi ef þetta yrði komið til landsins áður en ég fer.

Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 21:28
by Andri
þrífótur
Eigum við að hittast á morgun eða ? Borgar maður shop usa? Borgar maður ekki fyrst midwest supplies?
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 21:56
by Hjalti
Þú borgar báðum.
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:02
by Idle
Hjalti wrote:Þú borgar báðum.
Eh... Hvernig? Midwest Supplies senda aðeins til Bandaríkjanna og Kanada, og ShopUSA hef ég aldrei notað sem millilið. Hvernig eigum við þá að ganga frá greiðslum?
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:07
by Oli
Idle wrote:Hjalti wrote:Þú borgar báðum.
Eh... Hvernig? Midwest Supplies senda aðeins til Bandaríkjanna og Kanada, og ShopUSA hef ég aldrei notað sem millilið. Hvernig eigum við þá að ganga frá greiðslum?
pöntunaraðilinn borgar með kreditkorti, fyrst til Midwest og svo til shopusa þegar varan er afgreidd þaðan. Svo er þetta gert upp þegar varan kemur og þá ætti heildarkostnaður að vera ljós.
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:13
by Hjalti
Reyndar gefur þú Shop USA kortið þitt áður en þú veist hvað þetta verður mikið....
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:14
by sigurdur
Voðalega einfalt.
Til þess að reikna þetta út þá er einn sem að greiðir út allar greiðslur til bæði Midwest og Shop USA.
Heildarkrónutölunni er svo deilt með heildardollaraverðinu (vörurnar, ekki sendingin).
Ef við gefum okkur dæmi:
1 pantar fyrir 100 dollara fyrir 10 manns (hver maður pantar fyrir 10 dollara) og heildarverðið sem að hann borgar er 20.000 kr (12.000 kr til söluaðila og 8.000 kr til ShopUSA).
Svo ætlar einn að fá sínar vörur, þannig að það er tekið þessi 20.000 og deilt með 100 dollurum (gerir 200 krónur fyrir dollarann). Svo er margfaldað þeirri **vísitölu** með dollaramagninu sem að hann pantaði fyrir (10 dollarar) og út kemur niðurstaðan (200 krónur sinnum 10 dollarar samasem 2.000 kr).
Þannig reiknast sanngjarnt verð fyrir alla.
Ég tek fram að þetta er rosalega mikil einföldun á innflutningi en ef fólk er ósátt með það, þá má það bara reikna virðisaukann og toll af öllum vörunum til að fá nákvæma niðurstöðu.
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:26
by Idle
Ahh, svo að endingu gerum við bara upp við þann sem borgar pöntunina?
Þægilegt fyrirkomulag og sanngjarnt ef enginn er að panta sérstaklega þunga hluti.

Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:43
by Oli
Idle wrote:Ahh, svo að endingu gerum við bara upp við þann sem borgar pöntunina?
Þægilegt fyrirkomulag og sanngjarnt ef enginn er að panta sérstaklega þunga hluti.

Þyngdin skiptir víst ekki máli svo lengi sem pakkinn er ekki stærri en 0,5 m3
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:45
by sigurdur
Oli wrote:Idle wrote:Ahh, svo að endingu gerum við bara upp við þann sem borgar pöntunina?
Þægilegt fyrirkomulag og sanngjarnt ef enginn er að panta sérstaklega þunga hluti.

Þyngdin skiptir víst ekki máli svo lengi sem pakkinn er ekki stærri en 0,5 m3
Held að meðlimir Fágunar séu ekki lengi að fylla það rými...
Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:47
by Oli
það þarf nokkra gerpakka til að fylla það rými

Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 22:57
by Idle
Fer sendingarkostnaður gegnum ShopUSA eftir rúmmáli en ekki þyngd?

Re: Pöntun 2
Posted: 18. Aug 2009 23:25
by sigurdur
Það eru smá reglur á bak við þetta ...
Þú getur sent með flugi eða skipi.
Með skipi þá tekur það mánuð eða svo að koma til íslands. Með flugi þá tekur það 1-2 vikur (ef þú ert heppinn), en það tekur u.þ.b. viku eða svo eftir að þetta kemur til íslands að afgreiðast (tollur + svínsleg álagning). Það er flug á hverjum föstudegi til íslands en það þarf að vera komið í skemmurnar fyrir hádegi á þriðjudegi í Virginia til þess að fara með næsta föstudagsflugi.
Hvort sem að þú lætur senda með flugi eða skipi, þá þarft þú ekki að greiða nein aukagjöld ef að pakkinn er minna en ½m². Ef pakkinn er stærri en ½m², þá greiðast 400 USD fyrir hvern m² í flugi en 200 USD fyrir hvern m² í sjófrakt.
Þyngd hefur ekki áhrif á gjöldin.
Re: Pöntun 2
Posted: 19. Aug 2009 08:29
by Eyvindur
Ég vil benda á að maður borgar vsk af sendingarkostnaði. Einnig vil ég benda á að það þyrfti að reikna flutningskostnað (og vsk af honum) á pöntunaraðila eftir þyngd, þar sem sendingarkostnaðurinn innan USA miðast jú við hana. Mér finnst ekki ýkja sanngjarnt að við sem erum bara að panta ger, væntanlega 100-200 grömm á mann, séum að borga jafn mikið og þeir sem panta þung extract kitt. Kannski er erfiðara að umreikna rúmmálsgjald ShopUSA, en allavega finnst mér þetta vera nauðsynlegt.
Re: Pöntun 2
Posted: 19. Aug 2009 08:47
by sigurdur
Ég er að skoða flutningsgjöldin hjá FedEx Ground shipping (sem að Midwest notar). Ég fékk Quote fyrir sendingu frá midwest til Shopusa.
Ég prófaði að setja inn hálft kíló á pakkanum og þá endaði sendingarkostnaður sem einhverir 5.4 USD.
Ég prófaði svo að setja inn 5 kíló, og þá varð sendingarkostnaðurinn um 10 USD.
Ef þyngdin var 10 kíló, þá var sendingarkostnaður í kring um 22 dali.
Ég sé það ekki skipta neinu máli fyrst að það er verið að fara panta fyrir 200-300 dali, sendingarkostnaðurinn verður mjög lítill við þetta.
Hinsvegar ef að rúmmálið verður mjög mikið, þá fer þetta að kosta þannig að aðrir finna fyrir því (tvöfaldast í kostnaði ...)
Ég reiknaði líka hvað það væri ef við myndum senda heim með fedex, og 1kg kostar um 70 USD að senda heim, en 10 kíló 260 USD gróflega. Í þessu tilfelli þá fer þyngdin að segja sitt.
Re: Pöntun 2
Posted: 19. Aug 2009 08:52
by sigurdur
Við getum samt prófað að reikna þetta út þegar að þetta kemur til okkar, gæti verið spennandi að sjá hvort að það skipti máli fyrir framtíðarpantanir.
Re: Pöntun 2
Posted: 19. Aug 2009 16:05
by Gummi P
Idle wrote:
Ég fer norður í september - er ekki alveg með það á hreinu hvort það yrði fyrsta eða önnur helgin - og gæti komið við á Dalvíkinni (hef verið með annan fótinn þar, einn á Akureyri, og þann þriðja í borginni!). Sá möguleiki er a. m. k. fyrir hendi ef þetta yrði komið til landsins áður en ég fer.

Það væri algjör snild ef það væri mögulegt. En hvað ertu annars að gera með annan fótinn á Dalvík, Er séns að maður kannist eitthvað við þig???
Re: Pöntun 2
Posted: 19. Aug 2009 16:07
by Idle
Gummi P wrote:Idle wrote:
Ég fer norður í september - er ekki alveg með það á hreinu hvort það yrði fyrsta eða önnur helgin - og gæti komið við á Dalvíkinni (hef verið með annan fótinn þar, einn á Akureyri, og þann þriðja í borginni!). Sá möguleiki er a. m. k. fyrir hendi ef þetta yrði komið til landsins áður en ég fer.

Það væri algjör snild ef það væri mögulegt. En hvað ertu annars að gera með annan fótinn á Dalvík, Er séns að maður kannist eitthvað við þig???
Ættaður úr Svarfaðardalnum, og þekki svolítið til í Dallas. Var mjög mikið þarna á tímabili, en heimsóknunum hefur fækkað óhóflega mikið eftir að ég flutti í borg óttans.
Re: Pöntun 2
Posted: 20. Aug 2009 02:25
by sigurjon
Ég hafði ekki tíma í dag sökum mikilla anna að panta dótið. Hringi í Hjalta á morgun...
Re: Pöntun 2
Posted: 20. Aug 2009 21:57
by sigurdur
jæææææææja, hvernig miðar pöntuninni?
Muna bara, ef þið sendið með shopusa, að fá vöruna fyrir hádegi á þriðjudegi í skemmurnar hjá þeim í Virginiu (annars verður þetta ekki komið til okkar nema í fyrsta lagi eftir 3 vikur!)
Re: Pöntun 2
Posted: 24. Aug 2009 15:22
by Oli
Hvað segja menn, er þetta komið inn?
Re: Pöntun 2
Posted: 24. Aug 2009 15:45
by Hjalti
Ég hef ekkert heyrt
Endilega reynið að koma þessu á svo að maður geti aðstoðað með pöntunina...
Re: Pöntun 2
Posted: 25. Aug 2009 08:40
by sigurdur
sigurjon wrote:Ég hafði ekki tíma í dag sökum mikilla anna að panta dótið. Hringi í Hjalta á morgun...
Eru dagarnir svona lengi að líða hjá þér?
Ef það er eitthvað annað sem að hindrar þig í að panta, endilega biddu einhvern annan um að taka pöntunina áfram svo að
allir þurfa ekki að bíða!