Page 4 of 4

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 13. Aug 2009 22:42
by Hjalti
Alveg urrandi flott að mínu mati! :)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 13. Aug 2009 22:57
by Eyvindur
Þetta er íðilfagurt með eindæmum.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 14. Aug 2009 17:03
by Andri
Idle wrote:
Hjalti wrote:Þetta er komið og svínlúkkar
Mér finnst þetta furðu huggulegt, og vona að fleiri reynist okkur sammála þar. :skal:
Mér finnst þú furðu huggulegur

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 14. Aug 2009 20:38
by Idle
Andri wrote:
Idle wrote:
Hjalti wrote:Þetta er komið og svínlúkkar
Mér finnst þetta furðu huggulegt, og vona að fleiri reynist okkur sammála þar. :skal:
Mér finnst þú furðu huggulegur
Þakka þér fyrir það! :lol:

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 13. Oct 2009 11:04
by Bakkus
Sælir, er hægt að taka þátt í félagsskap ykkar? Við erum hér þrír sem höfum áhuga á þátttöku.
Hjalti wrote:Á fundinum síðast var talað um að koma á laggirnar lógósamkeppni fyrir félagið og það virðist leynast grafískir hönnuðir meðal okkar og í tengslum við okkur.

En það sem við ættum að skoða áður en við byrjum á svona samkeppni þá væri gaman að heyra hvað ykkur fynnst að Logoið ætti að tákna, hvað það á að þýða og svo framvegis.

Ég set þennan þráð sem Sticky svo að hann hverfi ekki neitt :beer:

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 13. Oct 2009 11:10
by Hjalti
Það eru mánaðarlegir fundir á mánudögum og eru þeir yfirleitt í heimahúsum.

Fundirnir eru tilkynntir með 7-4 daga fyrirvara í Almenn umræða og það þarf í raun ekkert að gera neitt til að mæta enn.

Félagið hefur enn ekki verið formlega stofnað og engin hefur verið rukkaður um félagsgjöld en við stefnum nú á að klára þetta allt fyrir jól :)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 12:09
by BeerMeph
Mér dettur í hug graffísk mynd af gersveppi - þær eru til nokkrar fallegar af honum í kennslubókum í líffræði

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 12:53
by sigurdur
Hjalti wrote:Félagið hefur enn ekki verið formlega stofnað og engin hefur verið rukkaður um félagsgjöld en við stefnum nú á að klára þetta allt fyrir jól :)
2 dagar í það ;)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 13:42
by Eyvindur
Þið fáið reikning á aðfangadag með eindaga á jóladag. Gleðileg jól!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 14:33
by Idle
Eyvindur wrote:Þið fáið reikning á aðfangadag með eindaga á jóladag. Gleðileg jól!
Allt í lagi svo fremi sem reikningurinn kemur ekki í bögglapósti!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 14:36
by Eyvindur
Hann kemur vafinn utan um grjót sem verður kastað inn um gluggann hjá ykkur.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 15:49
by Hjalti
sigurdur wrote:
Hjalti wrote:Félagið hefur enn ekki verið formlega stofnað og engin hefur verið rukkaður um félagsgjöld en við stefnum nú á að klára þetta allt fyrir jól :)
2 dagar í það ;)
Stefnan brást enda hefur ekki verið nein gríðarleg þörf á því ennþá.

Er að spá í að taka bara frjáls framlög til að borga hýsingu og eithvað svona fyrir þetta.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Dec 2009 21:01
by hrafnkell
Ég býð mig fram við að hýsa síðuna fríkeypis ef áhugi er fyrir :)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Dec 2009 00:06
by sigurdur
hrafnkell, er rekstraröryggi og uppitími hjá þér betri en hjá 1984?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Dec 2009 11:10
by hrafnkell
sigurdur wrote:hrafnkell, er rekstraröryggi og uppitími hjá þér betri en hjá 1984?
Líklega ekki verri allavega. Ég er með allar mínar síður hýstar á 3 serverum sem ég leigi í usa og uk. Samtals um 170þús heimsóknir á dag sem þeir þjóna og meira en milljón flettinga.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Dec 2009 11:14
by sigurdur
Það má þá vera að það sé betra að hýsa hjá þér. Hjalti er hinsvegar maðurinn sem að tekur svona endanlegar ákvarðanir.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Dec 2009 11:31
by hrafnkell
Jamm ég var búinn að minnast á þetta við hann. Hann var búinn að greiða eitthvað fram í tímann þannig að það væri ekki fyrr en það rynni út.