Page 3 of 4
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 24. Jul 2009 16:42
by Hjalti
Mér fynnst þetta bara vera að verða komið flott.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 27. Jul 2009 10:03
by sigurdur
Mér þykir þetta ógurlega töff skjöldur.
Ein pæling þó; Ef þú ætlar að hafa tilraunaglasið fyrir ofan textann ("logoþema"), væri þá ekki fallegra (lesist "symmetrical") að setja textann aðeins neðar og hafa tilraunaglasið stærra?
Með því að gera þetta þá myndast ekki þetta bil fyrir neðan textann ..
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 27. Jul 2009 20:26
by Idle
Engin samkeppni lengur?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 27. Jul 2009 21:07
by sigurdur
Þetta er megakúl.
Ég held að þú hafir bara unnið keppnina..
Eitt samt sem að ég tók eftir ........ glasið hallar ...... Ég veit að ég er ekki Newton, en á ekki vökvinn að vera láréttur, og mögulega reykurinn/gufan að leita upp? (það er kanski vindur í þeytivindunni ...

)
En samt, algjört meistaraverk.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 27. Jul 2009 21:10
by Idle
Jú, vissulega á vökvinn að halla, og ég tók eftir því áður en ég sendi þessa síðustu inn... Frekar illa fyrirkallaður eftir fyrsta vinnudaginn (sumarfríið búið), svo ég hreinlega nennti ekki meiru.

Má þó vera að ég bæti úr því fljótlega.
Þakkir fyrir hrósið!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 27. Jul 2009 22:18
by Idle
Ekki voru síðustu handtökin vönduð er ég hræddur um...

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 12. Aug 2009 22:28
by hallur
Snurfusa loftbólurnar og þá er þetta flott!
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 12. Aug 2009 22:33
by Eyvindur
Já, fara að koma þessu í gagnið!
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 12. Aug 2009 23:09
by Idle
Ég skal gera hvað ég get. Svo segið þið bara til um þær stærðir sem á þarf að halda. Því miður hafði ég ekki rænu á að vector gera þetta, svo mikil stækkun gengur ekki upp með góðu móti. Gengur þetta svo ekki bara upp í félagsgjöldin?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 10:13
by Hjalti
Þetta er komið í hausinn!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 10:21
by arnilong
Þetta fer vel í hausinn!
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 11:54
by Eyvindur
Reyndar er þetta voðalega lítið svona... Spurning hvort það væri málið að gera litla versjón, kannski bara "F" eða eitthvað? Og sleppa textanum efst á skildinum. Þetta er svolítið skrýtið þegar búið er að minnka það svona mikið. Og svo stendur nafn félagsins í hausnum líka, þannig að einföld logo útgáfa væri fín þarna. Eða hvað finnst ykkur?
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 12:08
by Idle
Stakk einmitt upp á því við Hjalta í gærkvöld - hef grun um að gerillinn í honum hafi blundað, því ég fékk aldrei svar.
Stórt F í miðjunni? Halda tilraunaglasinu á sínum stað? Geri e. t. v. nokkur minni uppköst þegar ég kem heim í kvöld og smelli hérna inn.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 14:42
by Eyvindur
Tilraunaglasið má vera, en þá verður Fið örugglega að fara yfir. Held að það verði að fylla út í skjöldinn, eða svo gott sem...
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 17:03
by Idle

- fagun-logo-phpbb-1.png (12.14 KiB) Viewed 43803 times

- fagun-logo-phpbb-2.png (12.72 KiB) Viewed 43803 times

- fagun-logo-phpbb-3.png (12.09 KiB) Viewed 43803 times
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 17:04
by Idle

- fagun-logo-phpbb-4.png (11.35 KiB) Viewed 43803 times

- fagun-logo-phpbb-5.png (11.81 KiB) Viewed 43803 times

- fagun-logo-phpbb-6.png (12.57 KiB) Viewed 43803 times
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 17:30
by Eyvindur
Mér líst best á þetta síðasta.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 19:14
by Korinna
Mér finnst þetta flott eins og þetta er núna. Bara F gæti svo sem staðið fyrir hvað sem er. Mér dettur strax eitt orð í hug sem væri óæskilegt. Tilraunaglasið minnir mig hinsvegar á efnafræði á menntaskólaárunum sem var algjör f***.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 20:48
by Eyvindur
F getur staðið fyrir hvað sem er eitt og sér. En í hausnum á síðunni er nafnið við hliðina. Hitt er klárlega málið þegar merkið stendur eitt og sér, en eins og það er í hausnum núna er ekki hægt að lesa þetta efsta og "fágun" er óheppilega lítið. Ég myndi vilja hafa Fið stakt, eins og það er í neðstu útgáfunni.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 21:55
by Idle
Ég er sammála Eyvindi; sjötta gerðin þykir mér koma einna best út.
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 21:59
by Hjalti
Smelltu henni inn í fullri stærð svo ég geti sett þetta í PSD skjalið mitt

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 22:02
by Idle
Gjörðu svo vel, heillin!
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 22:16
by Korinna
Eyvindur wrote:F getur staðið fyrir hvað sem er eitt og sér. En í hausnum á síðunni er nafnið við hliðina. Hitt er klárlega málið þegar merkið stendur eitt og sér, en eins og það er í hausnum núna er ekki hægt að lesa þetta efsta og "fágun" er óheppilega lítið. Ég myndi vilja hafa Fið stakt, eins og það er í neðstu útgáfunni.
point taken

Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 22:20
by Hjalti
Þetta er komið og svínlúkkar
Re: Logosamkeppni FÁGUNar
Posted: 13. Aug 2009 22:31
by Idle
Hjalti wrote:Þetta er komið og svínlúkkar
Mér finnst þetta furðu huggulegt, og vona að fleiri reynist okkur sammála þar.
