Page 2 of 3
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:18
by arnilong
Ég held að hyldeblomst sé á íslensku Yllir og ég fékk einu sinni 4. lítra af ís frá "micro"-ísverksmiðju frá Bornholm með hyldeblomst bragði, það var alveg magnað.. Langbesti ís sem ég hef fengið. Það sem mér fannst best var að bragðið var mjög sítruslegt og minnti mikið á centennial humla

Það var frekar ótrúlegt. Ég átti einmitt einn centennial IPA á lager þá og þegar ég smakkaði ísinn hugsaði ég strax: "Bíddu nú við". og svo rauk ég til og opnaði einn bjór.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:19
by Eyvindur
Voðalega er spjallið eitthvað rólegt í dag...
Er ekkert búið að heyrast með listann?
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:22
by Oli
Nei, ekkert heyrst enn með þetta. Ég set listann inn hérna ef hann sendir mér hann í pósti.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:23
by arnilong
Þetta er heimasíða gæjans, þetta heitir Boisen-is og ég keypti þennan ís beint af þessum gæja sem er á myndunum, megahress gæji. Hann var á einhverri matarráðstefnu sem haldin var í norræna húsinu 2006. Ég var einmitt búinn að lofa honum að segja vinum mínum frá ísnum ef ég fílaði hann.
http://www.boisen-is.dk/index.php?Produkterne
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:34
by Eyvindur
Ekki nema 3 árum síðar.

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:45
by arnilong
Eyvindur wrote:Ekki nema 3 árum síðar.

Hahaha, já þú segir nokkuð. Ég er nú samt búinn að tala um þennan ís stanslaust síðastliðin þrjú ár.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 13. May 2009 16:53
by Eyvindur
Jæja, það er nú gott. Mamma bjó einmitt á Bornholm í tæpt ár. Árið 2005. Verst að ég vissi ekki af þessum ís þegar ég fór að heimsækja hana...
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 09:01
by Eyvindur
Hefur ekkert til listans spurst?
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 09:26
by Hjalti
Ég svaf varla í nótt af spenningi.... án djóks

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 09:28
by Eyvindur
Haha! Næst verðurðu farinn að gerja í glerkúti bara svo þú getir vakað alla nóttina og horft á gæludýrin þín svamla um... Eða "beerquarium" eins og það kallast.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 09:51
by Hjalti
Hver segir að ég hafi ekki verið að því?

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 09:52
by Oli
Það hlýtur eitthvað að heyrast frá þeim í dag með þetta.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 12:34
by Hjalti
Anything?

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 13:12
by Oli
Var að senda fyrirspurn um hvernig gengi með verðskrána, læt vita hvað gerist, annars er karlinn líklega orðinn hundleiður á að maður sé alltaf að reka á eftir þessu

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 13:22
by Eyvindur
Já, en þú getur sagt honum að hér á vefnum séu sumir að fá magasár af spennu.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 14:03
by arnilong
Ég er nú búinn að bíða eftir svona tækifæri í svo langan tíma að nokkrir dagar breyta mig litlu á meðan ég er með í dílnum. Ég er samt spenntastur að sjá tegundirnar, ég er búinn að vera að ýminda mér hvað leynist á listanum, hvort jafnvel eitthvað exótískt malt leynist þar......

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 14:09
by Eyvindur
Já, ég segi það með þér... Ég er pínu óþreyjufullur að sjá tegundirnar. Mér liggur nú ekkert lífið á að ná í þetta malt, þannig... Á slatta og hef ekki tíma til að brugga.

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 16:15
by Hjalti
Ég er kominn með nuddsár af stressi á ýmsa staði frekar en magasár... Vonandi klára þeir vikuna á upplýsingum um þetta

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 17:58
by Stulli
Ég var að tala við Valgeir bruggmeistara. Þeir eru að leggja lokahöndina á listann, þetta er allt að koma. Slakið á og fáið ykkur einn góðann

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 14. May 2009 18:00
by Hjalti
Ég er ekki með neinn hérna heima sem er reddí til drykkju!

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 18. May 2009 10:52
by Eyvindur
Jæja... Haldið þið að humlalistinn komi í dag eða næstu daga? Get ekki beðið!
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 18. May 2009 10:55
by Hjalti
Var í sambandi við Jón áðan og hann er víst á bóla kafi í vinnu í augnablikinu en er að reyna að koma þessu frá sér eins fljótt og hann getur.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 18. May 2009 11:17
by Eyvindur
Jæja, það er nú gaman að heyra... Gott að þeir hafa mikið að gera. Við bíðum spök.
Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 21. May 2009 15:46
by Squinchy
Eitthvað að frétta með þessa skoðunarferð ?

Re: Malt og humlar frá Ölvisholti
Posted: 21. May 2009 15:55
by Hjalti
Velkominn Squinchy
Það verður ferð á vegum Fágunar 1 Júní klukkan hvað er ekki búið að ákveða en sú ferð verður á vegum FÁGUNar fyrir fullgilda meðlimi félagsins.
Það mun koma tilkynning um þetta væntanlega á morgun og um það hvernig maður skráir sig.
Endilega fylgstu bara með og lestu hvað er í gangi á spjallinu á meðan.
Prufaðu líka sjálfskynningarhluta síðunar svo að fólk fái að kynnast þér hérna inni.