Page 2 of 2
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 19. Nov 2009 21:58
by hordurg
valurkris wrote:nei, ég fór áðan í kringluna og náði mér í einn til að smakka.
Og ég sagt að ég mun ná í fleiri eftir að hafa smakkað hann
Nú ok mér var sagt í skútuvoginum að þeir Vínbúðin hefði almennt ekki fengið eitt einasta stk. en fannst það sam frekar skrítið m.v. að vinbud.is sagði að hann væri til í kringlunni, heiðrúnu og á selfossi.
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 20. Nov 2009 12:32
by Valli
Í dag eru eftir um 500 flöskur af jólabjór (eftir einn dag í sölu) sem eru dreifðar á milli Heiðrúnu, Kringlunni og Selfoss.
Kem með meira kringum 10 des. og það ætti að fara í víðari dreifingu.
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 20. Nov 2009 12:53
by valurkris
Vá, Hvað var mikið sem að fór í dreyfingu í ÁTVR
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 20. Nov 2009 14:23
by hordurg
valurkris wrote:Vá, Hvað var mikið sem að fór í dreyfingu í ÁTVR
Held það hafi verið um 850 stk ca. myndi ég skjóta á.
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 22. Nov 2009 13:55
by dax
valurkris wrote:Vá, Hvað var mikið sem að fór í dreyfingu í ÁTVR
Ég ætlaði einmitt að kippa með 2-3 kippum í Vínbúðinni Kringlunni, en kunni ekki við það, þar sem það voru í mestalagi 16 bjórar í hillum þar - greinilega lítið til.
Bjórarnir voru inná milli Kalda jólabjórs og einnig hjá Víking jólabjórnum. Það var eiginlega algjör heppni að ég fann hann. En djöfull er hann góður! 2.200.- krónur kippan, samt þess virði!

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 22. Nov 2009 20:04
by Andri
Ég verð að segja að 2200 kell er hlægilegt verð fyrir svona ógeðslega góðann bjór.
Ég fann eitt stykki! Ég var mjög sár, hann var svo rosalega góður. Ég er að spá í að kaupa nokkra og geyma kanski eitt stykki þangað til að næstu jólum

Er planið að gera hann aftur næst? Hann er roosalegur!
Ég er með 5 aðrar típur af jólabjórum inni í ískáp, ekki búinn að smakka þá samt. Býst ekki við miklu frá Mjöður Ehf miðað við hina bjórana þeirra :\
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 4. Dec 2009 12:32
by dax
Mér skilst að það komi meira af honum í dag í Vínbúðina... ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 4. Dec 2009 13:02
by halldor
dax wrote:Mér skilst að það komi meira af honum í dag í Vínbúðina... ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Jón í Ölvisholti segir í dag eða á morgun.
Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn
Posted: 4. Dec 2009 23:46
by Valli
Langar til að benda fólki á að Jólabjór 2009 fæst núna á krana á Vínbarnum.