Page 2 of 2
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 6. Aug 2009 18:27
by Eyvindur
Ég hef aldrei heyrt um að menn sjóði lager með lokið á. Menn lýsa bragðinu sem því fylgir sem svipuðu og soðnu káli... Hljómar ekki eins og æskilegt bragð í lager.
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 6. Aug 2009 20:33
by Oli
Nei kannski óþarfi að sjóða með lokið á allan tímann. Fer eftir því hversu mikið DMS þú vilt hafa í lagerbjórnum þínum.
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 7. Aug 2009 21:34
by Idle
Færði mjölinn yfir í hreinan kút rétt áðan. Nálgast áætlað FG (1.021), komið niður í 1.030. Hugsa að ég leyfi honum að liggja óáreittum næstu fjórar vikurnar, og tappa svo á flöskur. Fallegur litur, þó hann sé enn töluvert skýjaður.
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 9. Aug 2009 12:14
by Stulli
Sælt veri fólkið!
Katlar í brugghúsum eru alltaf með strompi til þess að hleypa gufunni og ýmsum volatíseruðum efnum út. Auk DMS, er maður einnig að hleypa ilmolíum frá humlunum út. DMS er framleitt úr SMM (S-metýl-methíónín) sem að umbreytist í DMS í suðunni. SMM umbreytist í DMS við minna en 100C og er því hætta á að maður endi með DMS í bjórnum eftir að suðu er lokið ef að virtirinn fær að standa of lengi fyrir kælingu þar sem að DMS fær ekki að volatíserast. Umbreyting á SMM í DMS og vólatísering á DMS gerist einmitt líka í möltuninni. Því meiri sem að maltið er ristað, því minna af SMM er í maltinu og þal í bjórnum. Það er þessvegna sem að nokkurt magn af DMS er venjulega í lagerbjórum, ekki vegna þess að það er eftirsóknarvert, heldur vegna þess að til að hafa bjórinn eins ljósan og hægt er, er maltið ristað eins lítið og mögulegt er (í rauninni bara þurrkað) og þal er mikið af SMM í maltinu. Það er því mitt persónulega álit að það er útlit bjórsins frekar en bragð sem að stýrir DMS magninu (þeas að framleiðendur sækjast eftir því að gera eins ljósan bjór og mögulegt er þótt að það framleiði óæskilegt bragð. Lífið er ein stór komprimísa

)
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 14. Aug 2009 20:37
by Idle
Það fer að líða að því að ég komi þessum á flöskur - er bara að safna Erdinger flöskum í rólegheitum til að nota undir mjölinn.

Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 14. Aug 2009 21:05
by sigurdur
Ég reyndi að tappa eina Erdinger flösku núna um daginn, hún hikstaði þannig að ég fleytti þessu yfir á aðra flösku. Ertu búinn að prófa átöppun á Erdinger?
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 14. Aug 2009 21:56
by Oli
Erdinger virka vel hjá mér

Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 14. Aug 2009 23:02
by Idle
sigurdur wrote:Ég reyndi að tappa eina Erdinger flösku núna um daginn, hún hikstaði þannig að ég fleytti þessu yfir á aðra flösku. Ertu búinn að prófa átöppun á Erdinger?
Nei, ég hef ekki prófað það (hef notað Skjálfta, Oxford Gold og Samuel Adams). Náðirðu ekki að loka henni nógu vel?
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 14. Aug 2009 23:10
by sigurdur
Þetta var eina Erdinger flaskan sem að ég var með í öllum skjálftahópnum.
Ég reyndi aðeins við hana, en vélin var eitthvað ekki að ná taki á flöskunni (þegar ég var að ýta handföngunum niður) þannig að ég svissaði bara á milli flaskna.
Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 17. Aug 2009 18:12
by Idle
Setti mjölinn á flöskur í gærkvöld (nærri því eingöngu Erdinger), og það gekk alveg ágætlega. FG reyndist 1.025, en áætlað af BeerSmith var 1.021. Ég er sáttur.

Re: Mjölur (Braggot)
Posted: 24. Aug 2009 22:25
by Idle
Nú - átta sólarhringum síðar - ákvað ég að setja eina flösku í kælinn. Var að hella honum í glas, og þó hann sé fjarri því að vera tær, er hann mun tærari en hitt bruggið mitt. Lyktin er sérstök, líklega er það hunangið og maltið.
Freyðir lítið, en er þó furðu léttur og hæfilega gosmikill. Þrátt fyrir hátt áfengismagn (9%) finnst það lítið sem ekkert, enginn "hiti" sem slíkur. Ferskur, smá sæta en með örlítilli sýru á móti.
Ég er svolítið kvefaður og á því erfitt með bragðgreiningar, en mér líkar þetta vel. Frúin er hrifin, og vinkona hennar líka. Ef konum sem drekka helst ekkert annað en Breezer og hvítvín, líkar við afurðirnar, þá get ég ekki annað en verið svolítið stoltur.
Veitir þó ekki af meiri þroskun. Held að ég muni geta óhikað mælt með uppskriftinni minni fyrir þá sem þora.
