Page 2 of 2

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 11. Jan 2012 14:23
by Tommi V
Hlakka til að koma. Þetta var frábært síðast.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 11. Jan 2012 23:22
by mattib
Ég kem og sækist eftir að vera meðlimur :0) .. tek líklega einn með mér

(Borga meðlimagjald fyrir fös.)

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 12. Jan 2012 14:42
by maestro
mæti :-)

Er búinn að millifæra þúsund kallinn.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 12. Jan 2012 14:54
by sigurdur
Ég tók eftir því að einhverntímann þá skrifaði einhver [UPPFÆRT] í hausinn á þessum þræði.
Ég hinsvegar hafði ekki hugmynd hverju var breytt.

Í gær þá fékk ég skilaboð í PM að það þyrfti að fylgja einhverjum reglum í skráningu svo að hún teljist gild. Það er að öllum líkindum sú breyting sem varð á þræðinum.

Fyrir alla sem hafa skráð sig: Lesið ítarlega reglurnar um hvernig skuli skrá sig, það þarf að gera það fyrir lok föstudags næsta. Það þarf að senda tölvupóst.

Til stjórnar: Vinsamlegast látið vita með viðbótarsvari í þræði sem þið breytið HVERJU þið breytið. Það getur fyrirbyggt mikinn misskilning hjá spjallborðsmeðlimum.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 12. Jan 2012 17:13
by Erlendur
Við mætum tveir. Búinn að greiða.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 12. Jan 2012 19:43
by gunnarolis
Sigurður ekki vera að æsa menn upp :) . Við báðum menn einfaldlega að senda meil svo við gætum ákvarðað fjölda. Það verður engum hent út ef hann sendi ekki e-mail. Við erum svo afslappaðir og friðelskandi í stjórninni.

Að þeim orðum sögðum, ef þið voruð búnir að tilkynna komu í þræðinum en ekki senda meil á skraning.fagun@gmail.com, þá væri fínt ef þið munduð nenna því.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 12. Jan 2012 20:27
by helgibelgi
var að fá leyfi frá SWMBO, svo ég mæti :drunk:

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 13. Jan 2012 14:30
by gunnarolis
Nú eru bara örfá sæti laus í ferðina í Borg! Það fer líka hver að verða síðastur að borga skráningargjaldið!

Ég vil einnig ítreka við menn að senda e-mail á skraning.fagun@gmail.com ef þeir eru fullgildir meðlimir og þurfa ekki að borga.

Ég vil einnig hvetja þá sem ekki eru félagar að gerast félagar, verðlaunin eru ótrúleg.

Kv. Stjórnin.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 13. Jan 2012 16:46
by sigurdur
gunnarolis wrote:Sigurður ekki vera að æsa menn upp :) . Við báðum menn einfaldlega að senda meil svo við gætum ákvarðað fjölda. Það verður engum hent út ef hann sendi ekki e-mail. Við erum svo afslappaðir og friðelskandi í stjórninni.

Að þeim orðum sögðum, ef þið voruð búnir að tilkynna komu í þræðinum en ekki senda meil á skraning.fagun@gmail.com, þá væri fínt ef þið munduð nenna því.
Æi .. þú þekkir mig .. alltaf með vesen. ;)

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 13. Jan 2012 23:40
by gunnarolis
Nú fer skráningu í ferðina að ljúka. Ég vil biðla til ykkar að mæta á réttum tíma og vera ekki að tínast inn langt fram yfir 12. Það er alltaf leiðinlegt að mæta of seint, og ekki hægt að lofa að menn nái túrnum verði þeir of seinir.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 00:07
by Feðgar
Vekjaraklukkan stillt CHECK
Nýátappaður bjór fyrir ferðina inneftir CHECK
Búinn að redda fari í flottum félagsskap CHECK

Þetta lofar sko góðu, klárt mál :beer:

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 00:39
by sigurdur
Ég verð a.m.k. 1 klst of seinn eins og ég greindi frá á seinasta fágunarfundi.
Ég skoðaði græjurnar hinsvegar í fyrra þannig að ég er ekkert allt of stressaður yfir því að missa af þeim hluta.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 01:34
by gunnarolis
Já ég gleymdi að segja, ef menn eru með bjór sem þeir vilja leyfa öðrum að smakka, þá er það auðvitað guðvelkomið. Meiri bjór = meiri ánægja.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 01:52
by Classic
Ölgerðin er með frekar stóra og massíva byggingu þarna uppfrá... Einhverjar nánari leiðbeiningar fyrir menn sem ekki hafa komið þangað áður svo maður eyði ekki óþarfa tíma í að villast hringin í kringum svæðið?

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 02:19
by bergrisi
Inngangurinn er að ofanverðu og á ekkert að fara milli mála. Það eru líka bílastæði þarna við hliðina á inngangnum. Maður keyrir upp á svalir til að leggja bílnum. Þetta er ca. fyrir miðju að ofan. Fossháls 7

Sjáumst á morgun.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 18:05
by AndriTK
takk fyrir mig. þetta var þvílíkur eðall. Góður bjór, flott aðstaða og góður félagsskapur... Hrikalega sáttur, Borg brugghús og fágun eiga stórt hrós skilið

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 18:18
by bergrisi
Takk fyrir mig. Alveg hrikalega ánægður með daginn.
Í Fágun færðu mest fyrir þitt fé. Það er alveg á hreinu.

Eftir að hafa smakkað alla þessa eðalbjóra í dag þá var reyndar einn Egils Gull sem ég átti heima rosalega óspennandi.

Segi aftur takk fyrir mig.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 19:35
by viddi
Tek undir með síðustu ræðumönnum. Áfram Borg! Frábærir bjórar og skemmtilegur félagsskapur. Hrós líka til stjórnarinnar fyrir ostaveislu. Vonandi verður þetta árlegur viðburður héðan í frá.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 21:20
by hrafnkell
Hrikalega hressandi!

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 14. Jan 2012 21:52
by Maggi
Leiðinlegt að komast ekki. Gaman væri þó að heyra hvaða bjóra þið fenguð að smakka. Minnir að Surtur hafi átt að vera á boðstólum, er það rétt?

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 15. Jan 2012 12:49
by sigurdur
Takk fyrir mig. Þetta var mjög skemmtilegt.
Maggi wrote:Leiðinlegt að komast ekki. Gaman væri þó að heyra hvaða bjóra þið fenguð að smakka. Minnir að Surtur hafi átt að vera á boðstólum, er það rétt?
Eftir minni:
Bríó
Páskabjór
Hveitibjór
Októberbjór
Úlfur (1 1/2 árs gamall)
Surtur á krana
Surtur, flöskuþroskaður

Þetta voru mjög skemmtilegir bjórar :)

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 15. Jan 2012 12:49
by sigurdur
Svo má ekki gleyma reykta undrinu hans Gunnars.

Re: Fágunarferð í Borg Brugghús. [UPPFÆRT]

Posted: 16. Jan 2012 14:29
by bjorninn
Þetta var æði, takk fyrir mig!