Page 2 of 4

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 25. Jun 2009 14:40
by hallur
Verður hann þá ekki útnefndur krúttgerill?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 25. Jun 2009 17:31
by Eyvindur
Einróma.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 26. Jun 2009 06:03
by nIceguy
Glæsilegar tillögur :)
Eigum við að fá eina tvær í viðbót og svo kjósa? Er ekki hægt að gera svona poll hérna inni?

:)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 26. Jun 2009 10:59
by hallur
Já, svona bjórpoll... svo ná menn sér í rör og sjúga hann upp.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 26. Jun 2009 20:13
by nIceguy
Hahahah

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 28. Jun 2009 02:41
by hallur
Nú er ég undir áhrifum gerla frá Árskógsströnd... Enginn annar?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 7. Jul 2009 19:20
by Idle
Ein hugmynd hér. Eitthvað klúðraðist þó hjá mér í fótósjoppunni, en ég get lagfært þetta ef vill.
fagun-logo-1.png
fagun-logo-1.png (49.87 KiB) Viewed 41118 times

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 8. Jul 2009 23:39
by Andri
Skemtilegar hugmyndir, virka vel í prenti en ég held að fólk muni ekki sjá geril út úr þessum bollum þarna.
Þessi skjöldur er aðeins of einfaldur að mínu mati.
Strax og það var byrjað að tala um þetta þá datt mér í hug eitthvað svipað og homebrewtalk.com er með, hefði samt sleppt bjórkollunni.
Hjalti sýndi okkur fína hugmynd á fundinum okkar, það var svona horn og gerjanlegu hlutirnir flæddu úr horninu :) en það þarf að fá einhvern grafískann hönnuð eða eitthvað til að teikna það upp

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 9. Jul 2009 07:47
by Eyvindur
En skjöldur með tilraunaglasi eða e-h þessháttar? Ég er að fíla skjöldinn, en finnst bara vanta eitthvað á hann. Skjaldarmerki, if you will.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 11. Jul 2009 15:14
by hallur
Skjöldurinn er fín hugmynd en leturmeðferð er agaleg...
Tilraunaglas og eitthvað til viðbótar kæmi alveg til greina.
En jæja, ég kominn aftur heim úr rúturúnti og þá get ég smakkað þennan IPA okkar Sjonna.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Jul 2009 20:09
by Idle
Önnur tilraun. Lengi getur vont versnað! ;)

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 22. Jul 2009 23:48
by Eyvindur
Mér finnst þetta allt í áttina. Ég myndi samt vilja sjá tilraunaglas eins og grafið í skjöldinn, og einhverja aðra týpógrafíu. Lúkkið á skildinum finnst mér hins vegar mjög flott. Hvað með aðra?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 12:42
by Idle
Eyvindur wrote:Mér finnst þetta allt í áttina. Ég myndi samt vilja sjá tilraunaglas eins og grafið í skjöldinn, og einhverja aðra týpógrafíu. Lúkkið á skildinum finnst mér hins vegar mjög flott. Hvað með aðra?
Ég gleymdi tilraunaglösunum. Dunda mér e. t. v. eitthvað meira við þetta í dag. :)
Varðandi leturgerð, hvurslags stíl hefurðu í huga? Serif, sans serif? Held að sans serif leturgerðir henti þessum skildi einna best.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 14:27
by Eyvindur
Hvað með eitthvað með örlitlu flúri? Mér finnst eitthvað skrýtið við að sjá svona rosalega plain letur á svona skildi... Er það bara ég?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 14:39
by Idle
Ég get aldrei farið eftir tillögum annarra, svo... Bygg og humlar! :D
Ég breytti leturgerðinni við skjaldarröndina úr Tahoma í Verdana, gafst upp á tilraunaglasinu í bili, og svo var stóra F-ið fyrir miðju farið að trufla mig örlítið.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 15:31
by Eyvindur
Nei, ekki bygg og humla. Þetta er ekki bara bjórgerðarfélag. Verður að vera almennara.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 15:54
by Andri
lúkkar vel, ég myndi samt vilja sjá tilraunaglas þarna :D

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 16:18
by Idle
Tilraunaglasið er í vinnslu. Þessi litli þykjustulistamaður sem býr í mér virðist hafa sofnað - spurning um að reyna að hrista upp í honum með einum Skjálfta? :D

Breytt: Hér er komið tilraunaglas.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 18:02
by Idle
Örlítið flúr til uppfyllingar. Er ég á réttri leið?

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 20:57
by Eyvindur
Já, þetta er allt á réttri leið, finnst mér. En er ekki málið að láta standa Fágun á miðjum skildinum?

Nú kemur reyndar tónlistarmaðurinn í mér blossandi... Hvernig væri að vera með F-lykla sitthvorum megin, á móti hvor öðrum, eins og F-göt á kontrabassa? Ekki ósvipaður fílingur og í flúrinu, nema tengist F-inu okkar...

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 22:21
by Idle
Einhverjar tillögur um hvernig ég ætti að koma textanum fyrir á miðjum skildinum? Líst vel á F-lyklana. Ef ég hef FÁGUN í forgrunni, þ. e. yfir tilraunaglasið, mætti e. t. v. færa flúrið/F-lyklana upp og niður sitthvoru megin við, svo þeir lendi ekki í orðinu líka?

Breytt: Enn eitt uppkastið (vonandi veldur þetta engum uppköstum)!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 23. Jul 2009 23:51
by Hjalti
Núna erum við farnir að tala saman!

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 24. Jul 2009 00:10
by Idle
Skerpti ögn á letrinu efst, lítilsháttar lagfæringar á skyggingu, og prófaði að taka F-lyklana út til samanburðar (fannst þetta orðið svolítið yfirþyrmandi vegna letursins fyrir miðju).

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 24. Jul 2009 15:25
by Eyvindur
Sammála, F-lyklarnir gera þetta of busy...

En mér finnst þetta allt í réttu áttina.

Re: Logosamkeppni FÁGUNar

Posted: 24. Jul 2009 16:03
by Idle
Ég gerði hin fullkomnu byrjendamistök í gær; vistaði engar breytingar í Photoshop síðan snemma í gærmorgun, og þegar ég ætlaði að fara að halla mér í morgunsárið, fór rafmagnið af. Eftir fjögurra tíma svefn byrjaði ég á endurgerð myndarinnar eftir því sem ég sendi síðast inn, sem gekk alveg bærilega. Sáralítill munur nú, og því til staðfestingar læt ég hér fylgja enn eina gerðina; fannst hálf kauðalegt að láta letrið liggja yfir tilraunaglasinu. ;)