Félagi minn sem er að koma sér inn í bruggunina varð fyrir því "óláni" að kaupa 500g gerpakkningu af T58 hjá Ölvisholti. Nokkuð ljóst að öllu því geri verður ekki bætt út í neina lögun hjá honum Er hægt að loka pakkningunni þegar búið er að taka það sem þarf í eina lögun eða er þetta ónýtt eftir opnun?
Það er alls ekki ónýtt eftir opnun, en gæðin minnka og líkurnar á sýkingu aukast. Best væri ef vinur þinn gæti lofttæmt umbúðirnar fullkomlega og lokað þeim, eða a. m. k. sett gerið í ziploc poka og geymt það í frysti. Þannig verður það í góðu lagi í a. m. k. eina viku, en framleiðendur mæla alls ekki með lengri geymslutíma en það eftir opnun.
Félagi þinn verður bara að brugga stíft í eina viku, og reyna að nýta allt gerið.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.