Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Spjall um cidergerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Post by Hjalti »

Hefur einhver hérna inni reynt að gera alvöru Cider hérna inni? Hverjir eru möguleikarnir að nálgast hráefni?


Ég var að skoða svona kitt... http://www.hopandgrape.co.uk/catalog/ca ... CID2115476 er eithvað varið í svonalagað?
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Post by Eyvindur »

Þetta er eflaust skárra en eplasafi úr búð, en ég hugsa að þetta sé svona kit'n'kilo sett (semsagt síróp plús kíló af sykri), sem er nú aldrei ávísun á nein stórbrotin gæði.

Hráefnin eru auðvitað bara epli... Þau eru oft til...

Hvað með Sól eplasafann, hefurðu eitthvað spáð í hann? Hann á að vera algjörlega laus við öll aukaefni, ekki gerður úr þykkni, 100% náttúrulegur (ef eitthvað er að marka auglýsingarnar þeirra). Auðvitað rándýr, en mér dettur helst í hug að nota hann. Nú eða bara að fara þegar sem mest úrval er af eplum og kaupa gott úrval, nota safavél til að ná safanum úr og gerja það. Það væri örugglega líka frekar dýrt, og asskoti mikil vinna, en þá ættirðu líka að fá ekta cider... Ég las allavega einhvers staðar að galdurinn á bak við góðan cider væri eplablandan. Sæt epli í bland við súr í góðu jafnvægi, o.s.frv. Þetta eru mikil vísindi...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Post by Hjalti »

Eyvindur wrote:Hráefnin eru auðvitað bara epli... Þau eru oft til...
Ég held að það sé alveg útilokað að nota venjuleg græn og rauð eppli í þetta og Jónagold eru nú ekki sérlega bragðmikil eppli þegar maður býr til safa úr þeim. Mögulega að nota gul eppli í bland við jonagold en Jonagold/Guleppla cider er nú ekki alveg nægilega spennandi....

Held að málið sé að finna nægilega skemtilegan safa hérna heima, jafnvel blanda saman nokkrum mismumandi.... Kanski bæta svo epplum útí en bara sem viðbót...
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Post by Andri »

Egils eru með sól safana held ég, ef maður þekkir einhvern þar getur maður nýtt sér samböndin.
Ég er nýbyrjaður að vinna fyrir þá, hef unnið fyrir þá í 1 dag núna, ætla að reyna að vinna mig upp í einhverja betri stöðu þarna sem tengist brugginu :) :drunk: :skal: :sing: :drunk: :skal: :sing:
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Möguleikar á Cidergerð á Íslandi

Post by Eyvindur »

Jæja, til hamingju með nýja starfið...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply