Braumeister wrote:Var að spá í að taka nokkrar flöskur af heimabruggi með mér þegar ég kem heim um jólin.
Hvað ætli tollararnir segi um ómerktar, brúnar, hálfslítra glerflöskur með litskrúðugum töppum?
Veit ekki með reglur varðandi þetta en þar sem ég þekki einn fyrrverandi tollvörð þá líklega gera þeir þetta allt upptækt ef þeir finna þetta, því þeir munu alveg pottþétt halda að þetta gæti verið eitthvað allt annað en bjór hvað sem þú segir þeim - þeir eru mjög þrjóskir.
Ég myndi hringja í tollarana og láta þá vita að þú sért að koma með þetta - þá kannski sleppuru við að þetta verði gert upptækt ef þeir finna þetta.
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
Bjórmiðar ættu nú samt að hjálpa þér töluvert. Jafnvel einhverjir staðlaðir úr homebrew búð - bara að það sé eins augljóst og hægt er að þetta sé bjór. Þá sleppa þeir þér örugglega í gegn án þess að vera að skoða þetta eitthvað sérstaklega, fyrir utan magnið. Allavega veit ég ekki til þess að neinn hafi lent í veseni fyrir að koma með óvenjulegan bjór heim...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Kunningi minn kom einusinni með flösku heim frá Kína.
Einu táknin sem hægt var að skilja á henni var "40%". Allt hitt voru kínversk tákn og það var sko ekki skortur á þeim. Sumsé ekki sjéns að komast að því hvað var í flöskunni og að hans sögn lyktaði þetta eins og hland. Tollararnir hleyptu honum þó í gegn með þetta.
Þannig að eins og Eyvindur sagði þá ættu miðarnir að hjálpa töluvert. Ég hefði haldið að þú værir í það minnsta ekki að brjóta nein lög eða reglur.