hordurg wrote:Ok snilld það er betra en ég bjóst við, svo p. líter með flösku og hreinsikostnaði er þetta kannski að m.t. um 200 kr p líter.
Eitthvað í þá áttina.
hordurg wrote:En hvernig er það er hægt að nota svona tunnur í bjórgerð sem hafa verið notaðar í víngerð, en ég er nú reyndar ekki að sjá þannig á heimasíðu ámunnar,, en þetta eru svona eins og risa stórir dúnkar svipaðir í útliti og landa flöskurnar bara margfallt stærri.
Ég veit ekki hvernig "landaflöskur" eru. Persónulega nota ég 30 lítra plastfötur sem seldar eru í Ámunni og Vínkjallaranum. Mæli með að kaupa
byrjunarpakkann sem inniheldur öll helstu áhöldin og ílát. Vínkjallarinn er ódýrari en Áman.
hordurg wrote:-En samantekt á hlutum sem maður þarf í þetta er hún ekki ca.
-30-40L pottur
-Heimamoddað kælibox (er ekki einhver með góðar DIY myndir
)
-2 dúnkar
-Svo dótið til að setja ofan á þá (til að hleypa Co2 inu út eða álíka, þetta sem bobblar)
-Væntanlega eitthvað til að mæla OG'ið og það
-svo koparvír til að búa til kælingu
Þetta er ágæt upptalning. 30 lítra pottur er nóg fyrir 25 lítra skammta, kæliboxið er góður kostur í meskiker. Vatnslás, sykurflotvog, fötur og fleira færðu í fyrrnefndum byrjunarpakka, hvort sem þú verslar við Ámuna eða Vínkjallarann. Mjúkt koparrör í kælispíralinn.
hordurg wrote:Er eitthvað sem vantar upp á? Svo væri virkilega freistandi að fá að smakka á nokkrum heimagerðum áður en maður færi út í þetta, ef einhver hefði áhúga þá á ég einn Blán Chimay sem ég gæti skipt á. Annað að lokum er búinn að vera að ath allgrain homebrew video á netinu þetta virðist ekki mikið mál. En það er aldrei neitt meira en það þangað til þetta fer í gerjun, aldrei þegar það kemur að átöppun og setja sykurinn í föskunar fyrir koltvísyringinn er það ekkert mikið erfiðara?
Hitamælir fyrir meskinguna, vog til að vigta korn, humla og fleira.
Átöppunin er mjög einföld í sjálfu sér. Algengast er að leysa upp dextrósa (þrúgusykur, kornsykur) í sjóðandi vatni, kæla og setja í aðra fötu, fleyta bjórnum úr gerjunarfötunni yfir á sykurlöginn og hræra varlega í, og fleyta svo úr fötunni yfir í flöskur og smella töppum á.