oskarhaf wrote:þetta er of gott til að geta verið
Ég átti svona vél einusinni. Eitt orð, að mínu mati: drasl.
Ég sé reyndar á myndbandinu að það er búið að betrumbæta hana aðeins, setja þrýstingsmælir og breyta vatnslásinum.
En það sem ég hafði á móti henni:
* Bjórinn bragðaðist illa, að mínu mati. Hann var búin til úr dufti sem þú keyptir sérstaklega fyrir þessa græju. Ég fékk þessa græju einmitt gefins því fyrri eigandi sagðist aldrei hafa geta búið til góðan bjór úr henni.
* Hún hélt illa þrýstingi á bjórnum.
* Umstangið í kringum vélina meira en bara brugga og drekka eins og þeir segja. Þrif, samsetning, sundurtekning og þrif aftur taka sinn tíma.
Myndi miklu frekar mæla með Cornelius kút, kolsýru og krana. Það er allvöru stöff og að mínu mati minna minna umstang í kringum það þegar þú ert komin með allar græjur.