[Gefins] Íslenskir humlar!

Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Post Reply
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

[Gefins] Íslenskir humlar!

Post by halldor »

Ég var að tína humlauppskeruna í garðinum hjá mér og fékk meira en ég kem til með að nota, enda nýbúinn að kaupa humla í Ölvisholti :)

Ég get ekkert sagt til með afbrigði og þaðan af síður um Alpha gildi þannig að þeir nýtast líklega best sem taste/aroma humlar. Þeir lykta mjög vel og ég er ótrúlega spenntur að nota þá. Ég er búinn að taka til 6 stk af 30 gr. pokum og ég mun skammta einn poka á mann :) Fyrstur kemur fyrstur fær.

Mér þætti ekkert leiðinlegt að fá heimatilbúinn bjór/mjöð/rauðvín/hvítvín/cider/ost/jógúrt í skiptum.
Plimmó Brugghús
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by Idle »

Til er ég! :)

Svo þekki ég annan sem heimtar áreiðanlega afganginn, en hann er svona "hopaholic". Andri í Kópavoginum. :D
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by Eyvindur »

Ég vil ólmur þiggja eitthvað. Get boðið smá úrval af bjór í staðinn.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by halldor »

Eyvindur wrote:Ég vil ólmur þiggja eitthvað. Get boðið smá úrval af bjór í staðinn.
Ég var nú bara að meina eina flösku af bjór fyrir eina únsu af humlum :)
Ég væri til í smakka rauðölið ykkar Úlfars ef það er komið á flöskur :beer:

Sjáum svo hvort einhverjir fleiri bætist í hópinn. Ef það eru bara þið tveir (Eyvindur og Idle) þá getið þið svo sem skipt þessu á milli ykkar.

Vitið þið annars eitthvað hvort maður eigi að þurrka þetta eða hvernig best er að geyma (væntanlega frystikistan).
Plimmó Brugghús
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by Eyvindur »

Já, þú verður að þurrka!!! Þetta eyðileggst eins og skot ef þú gerir það ekki.

Farðu á http://www.freshops.com" onclick="window.open(this.href);return false; og lestu þér til, eins og vindurinn.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by halldor »

Eyvindur wrote:Já, þú verður að þurrka!!! Þetta eyðileggst eins og skot ef þú gerir það ekki.
Æ og ó ég hef ekki tíma fyrir svoleiðis vesen :(

Jæja þá býst ég nú við að magnið sem ég hef til úthlutunar verði eitthvað minna í grömmum talið :)
Plimmó Brugghús
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by Andri »

Ég væri til í humla, gef þér eitthvað af lagernum sem ég er að gera í staðinn
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by dax »

Ég væri meira en til í afleggjara af rótum þessarar ágætu jurtar sem þú ert að rækta. Hvaða tegund er þetta?
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: [Gefins] Íslenskir humlar!

Post by Andri »

Er eitthvað að frétta af þessu?
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Post Reply