Var að fá hugmynd að uppskrift að fíflamiði sem mér þætti vænt um að fá álit ykkar á. Ég rakst á girnilega uppskrift að fíflavíni og hugsaði með mér að þetta væri eflaust enn betra sem mjöður... Endilega komið með ykkar álit og breytingartillögur.
Þessi uppskrift miðast við eitt gallon (ca. 4 lítrar).
3-4 lítrar af fíflablómum
1 kg af hunangi (meira, kannski?)
Safi úr 3 sítrónum
Kampavínsger og gernæring
Hvað finnst ykkur? Eitthvað blómahunang væri eflaust málið...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Já, nákvæmlega, þess vegna langaði mig frekar að gera þetta svona. Svo bara sjóða fíflana og sítrónusafann aðeins og setja hunangið svo út í. Hvað finnst þér um hunangsmagnið?
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Spurning um að fá eins neutral hunang og hægt er svo að fíflarnir fái að sýna sig. Fíflavínið mitt frá 2008 er bara með dextrósa en samt fer ekkert mikið fyrir fíflunum. En ég er að fíla þessa hugmynd og ég ætla að stela henni þegar ég geri fíflavín í sumar. Muhahahaha Að minnsta kosti langar mig að setja eitthvað hunang í stað sykurs.
Í gerjun: Jólaöl 2009 Í þroskun: Bláberjalambic 2007 Í flöskum: Margt Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
1 kg af hunangi í 3 L (myndi enda í ca gallon) af vatni myndi trúlega gefa þér O.G. á bilinu 1.060 og 1.070, líklega einhversstaðar þar á milli. Mínar tilraunir hafa allar verið á því bili. Það er barasta ágætis drykkur. En ef þú ætlar að nota kampavínsger geturðu alveg bætt við meiri hunang. Mig minnir að þú hafir talað um að þú fílaðir sæt vín. Því meiri hunang, því sætari endar mjöðurinn Því meira áfengisinnihald því magnaðari verður drykkurinn eftir góðan þroskunartíma, það er ég nokkuð viss um.
Ég var einmitt að hugsa það sama og Hr. Long með að nota frekar hlutlaust hunang. Ég myndi mæla með Euroshopper hunangið. Ég hef prófað fullt af hunöngum og þetta frá euroshopper er ódýrt og hlutlaust og hefur reynst mér vel.
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
Reyndar er það rétt, kampavínsgerið er kannski ekki rétti kosturinn fyrir mig. Jafnvel bara að nota ölger, þar sem það myndi trúlega skilja eftir slatta af sætu... Nema ég sleppi því að prima (hef ekki ákveðið hvernig ég vil haga mér í því) og setji bara gerstopp og meira hunang...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Hverskonar gerjunarílát notar maður fyrir t.d. 1 gallons uppskriftir eins og þetta?
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Ég ætla reyndar bara að nota plastfötu sem ég á, og konan mín getur reddað mér fleiri. Undan einhverju hreinsiefni eða e-h... Food grade... Held að þetta sé 5 lítra fata. Lítið mál að bora gat fyrir vatnslás.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Ég eginlega verð að smella mér í ríkið til að smakka svona mjöð... hef aldrei smakkað svoleiðis, og ekki fíflavín heldur ef út í það er farið....
Hvernig er fíflavínið?
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Ég bjóst við flippaðra víni, en þetta sem ég gerði var nokkuð hvítvínslegt í sætara lagi þó. Undirliggjandi er samt eitthvað þurrt órætt bragð sem ég kem ekki fyrir mig. Kannski er það vegna þess að ég borða ekki fíflahausa.
Í gerjun: Jólaöl 2009 Í þroskun: Bláberjalambic 2007 Í flöskum: Margt Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
kallarðu þetta ekki "fíflarann" það er að segja, "fíflarinn" er gaurinn sem fíflar fólk, sem er svosem tvírætt, ég held að fæstir noti orðið í dag til þess að lýsa einhverjum bólförum svosem, en það er líka fyndið kannski.