Nýjir bjórar í ÁTVR

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Stulli »

Fyrir utan Kaldi light og Freyju, þá er komið inn á heimasíðu ÁTVR bæði Anchor Liberty frá Anchor Steam brugghúsinu í San Francisco og Duchesse de Bourgogne frá Verhaeghe brugghúsinu í Vichte, Belgíu. Hérna eru á ferð alveg hreint frábærir bjórar og vil ég hvetja ykkur kæru bræður og systir til þess að tjékka á þeim.

Anchor Liberty er í áttina að IPA og var Fritz Maytag stofnandi Anchor brugghússins einn af frumkvöðlum bjórendurreisnarinnar vestra á áttundaáratug síðustu aldar. Má segja að með þessum bjór hafi Fritz komið IPA inn á kortið í Bandaríkjunum. Ég vona bara að Liberty-inn er í góðu standi.

Duchesse, í flæmska rauðölsstílnum, er alveg hreint magnaður bjór í mínum bókum og bjór sem að ég mæli hiklaust með ef að fólk vill komast inn í tunnuþroskaða/örveru ("wild", en þó í raun samt ekki) bjóra. Mér finnst bæði frábært og ótrúlegt að verið sé að flytja þennan inn :good:

Ég hef ekki enn náð að kíkja í Kringluna eða Heiðrúnu, þannig þetta er ekkert endilega enn komið í hillu, en maður vonar það bara.
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Andri »

Ætla að kíkja á morgun, vonandi eru þeir með eitthvað skemtilegt í hillunum
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Stulli »

Ég held að þessir bjórar séu ekki komnir í hillurnar. Allavega stendur "Því miður er varan ekki til í neinni verslun ÁTVR eins og er" við báða bjórana. Ég hef tekið eftir því að það getur liðið langur tími frá því að bjór dettur inn á heimasíðuna og þangað til að það er komið í hilluna.

Láttu okkur endilega vita um stöðuna þegar að þú kíkir næst Andri.
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by halldor »

Get ekki beðið með að smakka Liberty-inn :)
Plimmó Brugghús
User avatar
nIceguy
Kraftagerill
Posts: 117
Joined: 12. May 2009 05:23
Location: Århus Danmark
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by nIceguy »

'Eg er sammála þér Stulli um er að ræða gríðarlega vandaða bjóra. Ég fékk skilaboð frá Elg (sem flytur þetta inn) fyrir nokkrum vikum um komu þessa bjóra í ÁTVR (og setti frétt inn á Íslandssíðuna mína http://www.bjorbok.net/NBIslandsHornid.htm) heheh. Um var að ræða í byrjun júní en svo voru einhverjar tafir í afgreiðslu. Vonandi kemur þetta fljótt. Duchesse De Bourgogne er gíðarlega skemmtilegur bjór og spes sem ég hvet menn til að smakka með OPIN HUGA. Svo er Anchor Steam Beer alveg magnaður bjór sem tilheyrir einum af fáum upprunanlegu stílum Bandaríkjanna.
Bjórnörd med meiru.
Eftirfarandi sanna mál mitt:
http://www.bjorbok.net/NBIslandsHornid.htm" onclick="window.open(this.href);return false; - Bjór á Íslandi
http://www.bjorbok.net" onclick="window.open(this.href);return false; - bjórsíðan mín
http://www.bjorbok.net/nicebrew.htm" onclick="window.open(this.href);return false; - bruggsíðan mín
User avatar
arnilong
Gáfnagerill
Posts: 259
Joined: 5. May 2009 20:30

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by arnilong »

Þetta er ljúft. Ég er eiginlega alveg gáttaður yfir að fá Duchesse De Bourgogne hingað til lands, mikill metnaður þar. Ég vona að hann klárist ekki á fyrstu dögunum.
Í gerjun: Jólaöl 2009
Í þroskun: Bláberjalambic 2007
Í flöskum: Margt
Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Eyvindur »

Er Steam bjór ekki hreinlega eini stíllinn sem Bandaríkin eiga skuldlausan? Vissulega er bandarískur bjór mjög einstakur, en byggir þó alltaf á grunni annarsstaðar frá (þótt hann víki oft ansi duglega frá honum).

Anchor Steam er mjög góður... Þarf eiginlega að endurnýja kynnin við hann. Það er að rúmt ár síðan ég smakkaði hann, og man of illa eftir honum.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
olihelgi
Villigerill
Posts: 34
Joined: 11. May 2009 21:21

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by olihelgi »

Þetta eru fínar fréttir.

Ég er mjög spenntur fyrir Anchor Liberty. Anchor Steam beer er a.m.k. mjög góður.

Óli Helgi.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by halldor »

Stulli wrote:Ég hef ekki enn náð að kíkja í Kringluna eða Heiðrúnu, þannig þetta er ekkert endilega enn komið í hillu, en maður vonar það bara.
Sláandi fregnir... aðeins fjórum mánuðum eftir að Duchess kom á vefsíðuna hjá Vínbúðinni virðist hann vera kominn í hillurnar í Heiðrúnu og Kringlunni.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=14045" onclick="window.open(this.href);return false;
Getur einhver staðfest þessar fregnir.
Plimmó Brugghús
User avatar
valurkris
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 29. Jul 2009 06:47
Location: Kópavogur

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by valurkris »

Jebb tók mér einn áðan, hann verður smakkaður í kvöld :skal:
Kv. Valur Kristinsson
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Hjalti »

Elgur ehf stendur vaktina meðan að aðrir sofa!

Það verður að ýta á þann mann að taka inn eitt bretti eða svo af Sierra Nevada Torpedo! :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
karlp
Gáfnagerill
Posts: 305
Joined: 8. May 2009 00:27

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by karlp »

Stulli wrote:.... Anchor Liberty frá Anchor Steam brugghúsinu í San Francisco og Duchesse de Bourgogne frá Verhaeghe brugghúsinu í Vichte, Belgíu. ....

HOLY SHIT. I knew liberty from way back, it's a good solid beer, good aroma, all the good west coast stuff, but it wasn't new.

but the duchesse!?!?!!!! I don't have the words in icelandic my friends, all I can say is GET THEE TO THE RÍKIÐ!

Hún (?) er kominn í skútuvogi, veit ekkert um annar staðar.
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by halldor »

Gaaaaarg
Ég fór í Heiðrúnu í dag og leitaði að Duchess en fann bara hillumiðann og tóma hillu. Kalli... þú mátt ekki hvetja menn svona svakalega að þeir klári allan bjórinn frá mér.
Plimmó Brugghús
User avatar
nIceguy
Kraftagerill
Posts: 117
Joined: 12. May 2009 05:23
Location: Århus Danmark
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by nIceguy »

Hehehe þessi bjór er afar skemmtilegur en spes. Býð stundum upp á hann hér í Danmörku sem fordrykk!
Bjórnörd med meiru.
Eftirfarandi sanna mál mitt:
http://www.bjorbok.net/NBIslandsHornid.htm" onclick="window.open(this.href);return false; - Bjór á Íslandi
http://www.bjorbok.net" onclick="window.open(this.href);return false; - bjórsíðan mín
http://www.bjorbok.net/nicebrew.htm" onclick="window.open(this.href);return false; - bruggsíðan mín
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by halldor »

Mér finnst þau súröl sem ég hef smakkað vera hlekkurinn á milli léttvíns og bjórs. Eflaust eru margir þarna ósammála mér en þau hafa þennan súra undirtón sem er til staðar í rauðvíni og hvítvíni. Svo gæti að sjálfsögðu verið að geymsla í viðartunnum hafi sitt að segja í þessu.

PS. Ég fór í Skútuvog og þar var hann (hún) til í tugatali.
PPS. Ég mæli alveg svaaakalega með Samuel Adams Octoberfestbjórnum.... bestu kaupin í vínbúðunum í dag. Prófið hann áður en hann klárast.
PPPS. Ég tengist innflutningsaðilum þessara bjóra ekki neitt... þeir virðast bara vera að gera svo margt rétt núna :)
Plimmó Brugghús
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Oli »

pantaði mér nokkur stykki af Duchesse og Sam adams októberfest. Hlakka til að smakka.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Stulli »

halldor wrote:Gaaaaarg
Ég fór í Heiðrúnu í dag og leitaði að Duchess en fann bara hillumiðann og tóma hillu. Kalli... þú mátt ekki hvetja menn svona svakalega að þeir klári allan bjórinn frá mér.
Sorry Halldór, ég sótti allt sem var til af Duchess í Heiðrúnu á mánudag ;) Gott að það sé enn nóg til í Skútuvogi :beer:
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by Hjalti »

Ég smakkaði Duchesse í gær og gat ekki klárað nema 1/4 úr glasinu.

Hann bragðast eginlega nákvæmlega eins og sýkti oatmeal stoutinn minn, þannig að ef einhverjum langar í svoleiðis bjór þá á ég fullt af honum hérna heima sem ég allavega snerti ekki! :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by sigurdur »

Hjalti wrote:Ég smakkaði Duchesse í gær og gat ekki klárað nema 1/4 úr glasinu.

Hann bragðast eginlega nákvæmlega eins og sýkti oatmeal stoutinn minn, þannig að ef einhverjum langar í svoleiðis bjór þá á ég fullt af honum hérna heima sem ég allavega snerti ekki! :)
YEY, free Duchesse!! ;)
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by halldor »

Hjalti wrote:Ég smakkaði Duchesse í gær og gat ekki klárað nema 1/4 úr glasinu.

Hann bragðast eginlega nákvæmlega eins og sýkti oatmeal stoutinn minn, þannig að ef einhverjum langar í svoleiðis bjór þá á ég fullt af honum hérna heima sem ég allavega snerti ekki! :)
Ef þú átt einhverja óupptekna :) þá er ég til í að skipta við þig á Hoegaarden (sem er erfitt að nálgast hérlendis) og Duchesse.
Ég verð í Grafarvogi í mestallan dag, hringdu ef þú hefur áhuga :) 8242453
Plimmó Brugghús
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Nýjir bjórar í ÁTVR

Post by hrafnkell »

Sammála með oktoberfest, keypti mér nokkra í gær þegar ég sá þá og kann vel við. Er vanur að kaupa mér alltaf sam adams seasonal bjórana, amk þegar ég tek eftir þeim.
Post Reply