Daginn
Ég er núna að prófa að gera vín í fyrsta skipti og er ég orðinn dálítið ruglaður á þessu öllu saman. Fór ég og týndi bláber og reyndi að elta uppskriftina á áman.is http://aman.is/index.php?option=content ... &Itemid=34
Villa #1 - Það sem ég gerði var að ég setti ekki nægilega mikinn sykur í lögnina, flotvogin var í rétt um 100.
Villa #2 - Daginn eftir bætti ég svo við sykri og var ég heldur grófur við það og fór þá mælirinn í rétt yfir 110, en ekki 108.
Núna er svo komið að samkvæmt alkóhólmælinum mínum er ekkert komið í lögnina, þó ég finn áfengislykt þegar ég opni fötuna. Sykurflotvogin stendur í um 108, fallin úr 110, og þegar ég bragða á henni gæti ég trúað að það sé kolsýra í henni. Loftlásinn er enn að blása og því gerillinn ekki hættur vinna...
Er ég eitthvað að misskilja með alkóhólmælinn, sykur í lögninni að trufla hann ? Hvenær ætti ég að setja fellirinn út í ?
... þetta er kannski heldur langur og ruglandi póstur en vonandi getur einhver leiðbeint mér með eitthvað
**Ætlaði að skrifa 108 en ekki 180