Ég fór semsagt í Heiðrúnu um daginn og verslaði nokkrar tegundir, Samuel Adams Boston ale var einn af þeim, opnaði eina flösku í kvöld. Þessi er meðaldökkur eða amber eins og kanarnir segja, góður haus sem hélst nokkuð vel í glasinu. Meðalsætur maltkeimur og humlabragðið er þokkalega mikið, enda nota þeir víst Fuggles, Kent, Goldings og Saaz humla. Mæli með þessum
Þetta er einn af mínum uppáhalds, og hefur verið í nokkur ár. Ekki bara uppáhalds bjórinn frá Samuel Adams, heldur almennt! Þú færð prik frá mér fyrir að hafa góðan smekk.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Takk fyrir það Bara ef það væru nú seldir almennilegir bjórar hér fyrir vestan....jæja það er svosem hægt að panta allt á netinu núna. Já eða bara búa þetta til sjálfur
Ég er svakalegur aðdáandi Boston Ale. Varð mjög vonsvikinn þegar ég hætti að sjá hann í vínbúðum, en hann er allavega í Heiðrúnu núna (kaupi hann alltaf þegar ég á leið þangað). Móri er reyndar í svipuðum flokki og ég drekk hann jafnvel meira, enda alltaf gott að velja íslenskt.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Ég fæ allavega 3/4 af framboði ÖB í litlu Vínbúðinni í Firði - man ekki hvort ég hef séð Lava þar, enda er ég hvort sem er lítið fyrir hann. En við hjónin kaupum alltaf Skjálfta og Freyju þegar leiðin liggur í ríkið, og oftast smá Móra líka.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Miðin og flaskan eru týpísk Samuel Adams BBC flöskur ekkert nýtt hér á ferð.
Útlit: Sæmilega dökkur og minnir soldið á rauðan ale en vantar aðeins upp á rauðuna. Ágæt froða.
Angan: Góð humla lykt en maltið hefur vinningin hér.
Bragð: Gott jafnvægi, greinilega "professional" bjór á ferð með miklu malt bragði og góðum humlum til að hjálpa til
Í munni: Ekki alveg jafn góður að drekka eins og útlit var fyrir en samt mjög flottur en samt smá vonbrigði
Drekkanleiki (hér vantar gott ísl. orð): Ekki sérlega flókin að drekka en hentar mjög vel með mat. Borðaði pólskar pulsur og sauerkraut með honum og það hitti vel í mark.
Fær 3 skálar af 5 mögulegum!
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.