Já takk fyrir það strákar.
Framundan er nautnadagur mikill þar sem að mikið verður drukkið og etið. Bjórlisti dagsins inniheldur m.a. eitthað úr minni framleiðslu, Liefmans framboise, Russian River Pliny the elder (sem að ég sjálfur bruggaði og tappaði) og Redemption (sem að ég setti sjálfur á flöskur:), Victory storm king stout '05, að sjálfsögðu smá Orval og svo rúsínan í pylsuendanum; Westvleteren 12 '04.
Með þessu öllu verður borðað ýmis grillmatur (rib-eye, svínarifjur, heimatilbúin BBQ sósa), útlendir og innlendir ostar, heimabakað brauð og svo heimabökuð pseudo-sacher terta.
Svo ætla ég að leggja í árlegan afmælis brettanomyces bjór sem að ætti að verða tilbúinn þegar að ég á næst afmæli