Ég er með brauð í vélinni sem ég gerði úr þessum afgangi, semsagt átti ég bara að halda áfram að rækta með 1/4 bolla, þar var bætt við 1/4 bolli hveiti og 1/4 bolli vatn.
Mig langaði ekki að henta hitt svo að ég sannaði deigið með því að bæta við 1 1/2 bolla hveiti og 1 1/2 bolla vatn og notaði þetta í
http://www.recipezaar.com/Sourdough-French-Bread-33085 Brauðvélin er að klára góðgætið akkúrat núna og þetta lítur bara rosalega vel út.
Stofnin sjálf líktar súr en samt ekki slæm og búbblar enn. Hún gæti dótið niður ekki á morgun heldur hin en þá má vekja hana með smá edík. Núna á bara að halda árfram að bæta 1/4 bolla hveiti og 1/4 bolla vatn út í á hverjum degi þangað til hún hefur tvöfaldast. Maður tekur 1/4 bolla frá sem stofn til að halda áfram og nota hitt til baksturs.
Það er víst hægt að gera brauð, kökur, múffur og meira úr súrdeigi. Mér finnst gaman að fylgjast með þessu, það vantar bara vatnslás á þessu
Annars veit ég ekkert um hvernig þetta er á Íslandi. Vinkona mín fékk einu sinni stofn í Brauðhúsinu í Grímsbæ og átti hana í mörg ár.