Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Irish Moss fæst a. m. k. hér: http://www.natturan.is/verslun/217/
Appelsínur sem fást hér (a. m. k. þessar "venjulegu") flokkast sem sætar.
Ég er ekki viss um júníper berin, en það er ekki ósennilegt að þau fáist þurrkuð hér á landi (veit að þau eru notuð svolítið í matargerð á Norðurlöndunum).
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
'irish moss' => fjörugrös, hægt að kaupa á nattura.is eða tína úr fjörum á suður / vesturlandi.
Einiber getur þú trúlega fundið í bónus.
Ég veit ekki hvort að ísland kaupir appelsínur eða appelsínubörk frá Curacao .. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
sigurdur wrote:'irish moss' => fjörugrös, hægt að kaupa á nattura.is eða tína úr fjörum á suður / vesturlandi.
Einiber getur þú trúlega fundið í bónus.
Ég veit ekki hvort að ísland kaupir appelsínur eða appelsínubörk frá Curacao .. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
Juniper == einir. Þetta hafði ég ekki hugmynd um!
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ég hafði heldur ekki hugmynd um að juniper væri einiber
Flott að heyra með írska mosann.
Ég veit vel að appelsínur fást á Íslandi, ég var bara að spá hvort menn væru að kaupa þetta úr heimabruggverslunum eða bara mixi þetta heima hjá sér. Hefur einhver hér prófað að nota ferskan/heimaþurrkaðan appelsínubörk í bjór?
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
ég keypti poka af fjörugrösum í júní að mig minnir frá náttúra.is, á pakkanum stóð svo að varan rynni út mánuði síðar .....passið að fá ekki e-h gamalt útrunnið dót. Ég nennti ekki að kvarta yfir þessu enda býst maður við að svona þurrkað dót sé í lagi í nokkur ár í viðbót
sigurdur wrote:'.. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
Gallinn við það er að appelsínur eru gjarnan vax húðaðar. Senninlega til að láta þær líta betur út (og e.t.v. til að þær geymist betur ?).
Senninlega þarftu að fara í dýrar lífrænt ræktaðar til að sleppa við vaxið.
Idle wrote:Ég er ekki viss um júníper berin, en það er ekki ósennilegt að þau fáist þurrkuð hér á landi (veit að þau eru notuð svolítið í matargerð á Norðurlöndunum).
Þau fást, síðast þegar ég vissi í Tiger í kringlunni (hjá kryddinu). Sennilega þá í öllum Tiger búðum
Eins gæti mig grunað að Europris ætti þau til.
Oli wrote:ég keypti poka af fjörugrösum í júní að mig minnir frá náttúra.is, á pakkanum stóð svo að varan rynni út mánuði síðar .....passið að fá ekki e-h gamalt útrunnið dót. Ég nennti ekki að kvarta yfir þessu enda býst maður við að svona þurrkað dót sé í lagi í nokkur ár í viðbót
Ég efast nú um að fjörugrasið varð ónýtt eftir það. Og ef maður panta það og nota það strax þá gerir það ekkert til hvort sem er. Ábyggilega þarf að vera meiri eftirspurn eftir þessu, þá fær maður ferskari vara.