Fékk eina "sprengju" frá Ölvisholti nýlega. Keypti kippu af Skjálfta og stakk öllu inn í kælinn. Þegar ég opnaði þann síðasta, tæpri viku síðar, gaus allt upp úr honum. Spurning um að endurnefna Skjálfta "Eldgos" ef þetta verður normið?
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.

Var þetta bara einn bjór sem gaus... eða fleiri í kippunni?

Bara einn, og sá hafði staðið óhreyfður í kælinum allan tímann.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Hjalti wrote:Leffe er ekki lengur á krana þarna....
Þar skjátlast þér kæri vin. Ég var að koma af Vínbarnum og svo maður quote-i nú Homer J. Simpson þá flæddi bjórinn (Leffe) þarna eins og vín.
Stór Skjálfti af krana kostaði 800 krónur og var afar ljúffengur. Það sem mér fannst skemmtilegast að sjá var að þarna virtist fólk vera að kaupa jafnt Skjálfta, Leffe og Stellu af krana. Ekkert sull þar á ferð!
Ég fékk mér líka Samuel Adams Honey Porter og var hann hreint ekki slæmur.
Öjj... Það var eithvað dót á Leffe krananum bara fyrir örfáum vikum þegar ég var þarna og barþjónnin sagði að hann væri hættur....
Er þetta samt ekki Leffe Blonde?
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Ég fór á föstudagskvöldið ásamt félaga mínum á Vínbarinn til að prófa Skjálfta og ekki fannst mér hann amalegur, en félagi minn fékk hinsvegar alveg hrikalegan brjóstsviða af honum. Hefur einhver annar lent í því?
sigurdur wrote:Ég fór á föstudagskvöldið ásamt félaga mínum á Vínbarinn til að prófa Skjálfta og ekki fannst mér hann amalegur, en félagi minn fékk hinsvegar alveg hrikalegan brjóstsviða af honum. Hefur einhver annar lent í því?
Ég fæ brjóstsviða af Kalda og sérstaklega páskabjórnum þeirra (veit ekki afhverju??), hef aldrei lent í því með Skjálfta.