Ég ákvað fyrir þremur vikum tæpum að reyna endurgera Þvörusleiki frá Borg brugghúsi. Þetta reyndar endaði á því að verða eitthvað allt annað því mest af humlunum voru ekki til í augnablikinu. Í upprunalegu samsetningunni var Borg að nota Perle og Cascade í suðu og Appollo, Bravo og Citra í þurrhumlun. Maltið var Pilsner malt og caramel. Borg setur reyndar eykar tunnu spæni út í suðu en ég sleppti því. En engu að síður endaði ég með einn þann besta bjór sem ég hef smakkað. Bruggaði úr 6.6 kg af korni og var með Perle(60, 30) og Simcoe(0) í suðu og þurhumlaði með Simcoe, Amarillo og Centinel(samtals um 170 gr). Bjórinn endaði í rétt um 7 % Þvílíkur ilmur, bragð og útlit. Algert nammi
Miðað við 21 lítra batch.
5,5 kg Pilsner malt
1.1 kg Caramel malt
13.48 gr af Perle í 60 mín
13.48 gr af Perle í 30 mín
20 gr Simcoe í 0 mín
90 gr Simcoe þurrhumlun í 5 daga
50 gr Amarillo þurhumlun í 5 daga
40 gr Centinnell þurumlun í 5 daga
1 Whirflock tafla 10 mín
1 pakki af US-05 ger
Gerjað við 20 gráður í 10 daga
Mjög skemmtilegur bjór með miklum og góðum ávaxtakeim auðdrekkanlegur og lítið beiskur.