Sæl öll!
Á dagskrá er heimsókn í The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum. Formleg dagskrá væri á laugardeginum sjálfum og myndi hefjast um morguninn með bruggi. Síðan yrði eitthvað smakk og fleira húllum hæ. Gert er ráð fyrir að fara þá til eyja á föstudeginum og vera komin þar um kvöldið og gista alla helgina, 21.-23. apríl
Við eigum í augnablikinu frátekin gistipláss fyrir 10 manns á Aska hostel (2 tveggja manna og 2 þriggja manna herbergi). Í augnablikinu hefur verið greitt fyrir 7 af þessum gistiplássum (fyrir aðra nóttina) vegna frestunarinnar á ferðinni. Hægt er að fá fleiri pláss og eru ekki öll af þessum 7 gistiplássum nýtt eins og staðan er nú svo við hvetjum ykkur til að skrá ykkur sem fyrst.
Skráning er síðan komin upp í form
hér og er að sjálfsögðu opin öllum. Við biðjum þá sem voru skráðir í fyrri ferðina að skrá sig aftur í þessa, þið eruð ekki sjálfkrafa skráð í þessa ferð. Fágun mun taka þátt í einhverjum kostnað fyrir fyrir meðlimi sína, en það mun skýrast betur á næstu dögum. Hver og einn sér um að koma sér sjálfum til eyja en við hvetjum að sjálfsögðu alla til að reyna sameina í bíla. Það er í kortunum að hafa einhverja létta dagskrá á föstudagskvöldinu en enga formlega dagskrá á sunnudeginum og mun það að sjálfsögðu skýrast þegar nær dregur.
Ef þið hafið aðra dagsetningu í huga sem þið viljið koma á framfæri, endilega setjið hana hér sem svar við þráðinn. Við höfum ekki kannað aðrar dagsetningar en 21.-23 og 28.-30 apríl. Við bendum þó á að það þarf að hafa hraðar hendur þar sem ört bókast í gistingar þegar Herjólfur er komin í fullt að sigla frá Landeyjahöfn.
Þráðurinn verður uppfærður eftir þörfum.