Hér skal eingöngu skrá uppskriftir sem hafa verið prófaðar og gefið góða raun að mati bruggara, vina og/eða vandamanna. Nafn bjórstíls skal taka fram í titli þráðar. Dæmi: "Hvítur sloppur – Belgískur Hveitibjór"
Ég ákvað að prófa stíllausan nonsense bjór. Hér eru þrír megin hlutir sem koma að bragði og lykt og clasha þeir nánast allir til að gera að mínu mati complex og skemmtilegan bjór sem hefði allt eins geta orðið algjört drasl.
Þessi finnst mér frábær, mjög áhugaverður! Þú segir eikarspírall í 6 vikur. Hvað gerjaðirðu hann lengi, þ.e.a.s. hvenær bruggaðir þú hann og settir svo á flöskur?
Takk kærlega fyrir, ég er mjög ánægður með hann og hlakka til að smakka þegar ég kem erlendis frá í janúar hvort og hvernig hann er búinn að þroskast.
Hann var minnir mig í alveg 3-4 vikur hjá mér áður en ég setti spíralinn útí. En það þarf ekki að bíða svo lengi, vilt bara að hann sé full gerjaður svo t.d. 2 vikur er fínt. Ég myndi setja báða eikarspíralana útí ef ég geri hann eða ehv svipað aftur. Ef þú ætlar að skipta út gerinu þá myndi ég líklega velja breskt ger frekar en amerískt