Sælir félagar
Nú langar mig að leita ráða frá ykkur varðandi mína fyrstu smíði á brugg græjum.
Er að nota byrjendapakka brew.is eins og er, en ég er ekki reyndur bruggari. Ég er búinn að skoða margt og mikið á netinu og núna nýlega fékk ég gefins notaðan ryðfrían kút sem var hættur að gegna hlutverki sínu sem sápukútur. Málin á honum er: Þvermál, 35,7cm. Lengd, 54cm. Semsagt 54l. Annan kút sem eitthvertíma hefur verið bjór kútur frá pripps fann ég í geymslu en hann hefur málin Þvermál,29cm lengd, 47cm og er 30,6l (myndir koma þegar ég er búinn að læra á það).
Plan A er að taka stóra kútinn og setja element, falskan botn, hringrásardælu, PID stilli og korn sigti, einfalt?
Plan B er að nota báða kútana og gera "braumeister" clone með 2 ílátum eins og þessi meistari. sjá link http://www.fagun.is/viewtopic.php?f=24&t=3506
Markmið mitt er að leggja vinnu í að smíða góðar og eigulegar græjur og ekki úr eitthverju sem ekki hentar.
Mínar spurnigar til ykkar er :
Hvað mynduð þið gera sem reyndari eru og hefðuð þessa kúta í höndunum?
Mynduð þið kaupa aðra potta sem hefðu annað hlutfall af lengd og breidd?
Hvað er unnið að fara frá Plan A í Plan B?
Á ég að skoða 3 "vessel" frekar ?
Endilega kastið eitthverju framm ég reyni að koma með myndir bráðlega.
Kv. Gylfi