Formaður, fh. stjórnar Fágunar leggur fram eftirfarandi lagabreytingatillögur. Á aðalfundi 2014 voru samþykktar grundvalla breytingar á lögum félagsins sem breyttu starfsári félagsins þannig að það er nú almanaksárið en ekki milli aðalfunda eins og áður. Á síðasta aðalfundi 2015 voru svo samþykktar gegngerar breytingar á lögum félagsins sem voru mjög til bóta. Þessar lagabreytingatillögur nú gera ekki neinar grundvallar breytingar á lögunum, heldur miða að mestu að því að taka af annmarka á lögunum sem enn eru til staðar í ljósi breytinga á starfsárinu. Formaður mun gera frekar grein fyrir þessum tillögum á aðalfundinum.
Sjá hér samþykkt
lög Fágunar frá aðalfundi 2015
Lagabreytingatillögur Aðalfundar Fágunar 2016
Tillaga 1
Eftirfarandi málsgrein komi sem þriðja málsgrein 1. greinar:
Reiknings- og starfsár félagsins er almanaksárið.
Málsgrein þessi var áður í 6. grein og fellur hún þar niður.
Tillaga 2
Í síðustu málsgrein 1. greinar bætast við á eftir orðunum “hafa borgað félagsgjöld”:
á starfsárinu
Málsgreinin verði þá:
Félagar eru hverjir þeir sem hafa náð fullum 20 ára aldri, hafa borgað félagsgjöld
á starfsárinu og undirgengist þessar samþykktir.
Tillaga 3
Í þriðju málsgrein 4. greinar falli burtu eftirfarandi texti:
Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti af 5 úrslitum mála.
Tillaga 4
Ný málsgrein komi eftir fyrstu málsgrein 6. greinar:
Aðalfundur er jafnframt uppskeruhátið félagsins og skal stjórn halda hann eins veglegan og rekstrarafkoma félagsins gefur tilefni til.
Tillaga 5
Þriðja málsgrein 6. greinar falli niður (Atkvæðisrétt hafa gildir félagar skv. fyrstu grein) og í stað hennar komi:
Rétt til setu á aðalfundi hafa þeir sem eru gildir félagar skv. fyrstu grein auk þeirra sem greiddu félagsgjöd á nýliðnu starfsári.
Tillaga 6
Í síðustu málsgrein 6. greinar, lið 4 yrði bætt við orðunum:
og ákvörðun tekin um hvernig skuli fara með hrat síðasta starfsárs
Liður 4 verði þá:
Starfs- og fjárhagsáætlun lögð fram til umræðu
og ákvörðun tekin um hvernig skuli fara með hrat síðasta starfsárs
Tillaga 7
Í síðustu málsgrein 6. greinar, lið 5, í stað næsta almanaksárs komi
núverandi starfsárs
Auk þess verði bætt við orðunum:
og tekur það gildi strax
Liður 5 verði þá:
Árgjald
núverandi starfsárs lagt fram til umræðu og samþykktar
og tekur það gildi strax.
Tillaga 8
Í síðustu málsgrein 6. greinar, lið 7 falli eftirfarandi setning niður:
Umsjónarmaður vefsíðu
Tillaga 9
Í stað fyrstu málsgreinar 8. greinar komi ný málsgrein (feitletranir sýna breytingu/viðbætur á núverandi málsgrein):
Á aðalfundi skal gjaldkeri leggja fram tillögu í tengslum við fjárhagsáætlun þess efnis að tilgreindum hluta rekstrarafgangs nýliðins starfsárs verði úthlutað til reksturs félagsins á yfirstandandi starfsári skv. nánari ákvörðun stjórnar. Sé tillagan samþykkt telst sú upphæð ekki lengur til rekstrarafgangs síðasta starfsárs.
Tillaga 10
Við aðra málsgrein 8. greinar bætist við orðin
skv. sjöttu grein
Önnur málsgrein verði þá:
Restrarafgangi/hagnaði síðasta starfsárs skal varið til veitingakaupa á aðalfundi
skv. sjöttu grein.