Það er amk ekkert meira mál að sækja pósta í phpbb en vb. Amk algjör óþarfi að flytja milli kerfa bara út af því.æpíei wrote:Akkúrat Hrafnkell. Það virðist vera vandamál með phpBB að geta sýnt nýja spajllþræði þarna á forsíðunni. Einnig þyrfti spjallið að falla betur að síðunni þannig að hausinn fylgi, svo það sé ekki eins og þú sért kominn á nýja síðu. Það sem mun gerast er að fólk bókmerkir "Show new posts" á spjallinu og fer framhjá forsíðunni.
Það má alveg skoða að flytja spjallið í annað kerfi. Við eigum leyfi fyrir vBulletin, en kannski eru önnur kerfi til sem henta jafn vel.
Ég bíð bara spenntur.Hrafnkell wrote:Sé til hvort ég geri pull request
vBulletin og phpBB eru tiltölulega keimlík kerfi.æpíei wrote:Það má alveg skoða að flytja spjallið í annað kerfi. Við eigum leyfi fyrir vBulletin, en kannski eru önnur kerfi til sem henta jafn vel.
Hrafnkell wrote:Það var forsíða hérna fyrir einhverjum árum, en hún var lítið uppfærð og ekkert notuð. Spurning hvort það ætti ekki að hafa spjallið í algjörum forgrunni á forsíðunni (new posts), en kannski einhver aukagögn líka sem taka minna pláss.
Hmm.æpíei wrote:Einnig þyrfti spjallið að falla betur að síðunni þannig að hausinn fylgi, svo það sé ekki eins og þú sért kominn á nýja síðu. Það sem mun gerast er að fólk bókmerkir "Show new posts" á spjallinu og fer framhjá forsíðunni.
Það er bara gott mál. Örstutt gúgl bendir til þess að þetta sé hægt í Javascript, sem er nokkuð sama um undirliggjandi kerfi. Herra Kristinn, ert þú hér?æpíei wrote:Þá minntist Gummi kalli á að til væru uppskriftar kerfi sem mætti fella inn. Það mætti td athuga með þetta hér?
viewtopic.php?f=14&t=3572
Þetta finnst mér hljóma mjög skynsamlega. Ef ég sæi óséða pósta á forsíðu myndi ég frekar fara þangað en beint inn á spjallborðið, og þá myndi ég sjá allt hitt.æpíei wrote:Ég sé fyrir mér að síðan verði meiri heldur en bara spjallborðið. Hún á að þjóna sem vettvangur fyrir þekkingu og fræðslu, bæði um félagið en einnig fróðleiks til meðlima. Þannig að ég er ekki sammála að forsíðan eigi bara að vera fyrsta stopp fyrir nýja meðlimi og meðlimir svo eftir það fari eingöngu á spjallborðið. Þess vegna er mikilvægt að forsíðan verði svona nokkurs konar mælaborð (dashboard). Þú sérð þar á einu bretti:
- nýjir póstar á spjallþræði, sem þú hefur ekki séð áður. Það má gera ráð fyrir að það séu 2-5 nýjir þræðir eða svör við eldri þræði á degi hverjum m.v. núverandi notkun
- nýjar fréttir frá félagin. Það má kannski ætla að þær verði ein á viku
- nýjar fræðslugreinar frá félagsmönnum eða öðrum. Má miða við eina á mánuði
- nýjar uppskriftir. Með uppskrifavef þar sem notendur geta sjálfir sent inn uppskriftir, spjallað um þær og rætt, þá opnast hér mjög skemmtilegur vettvangur. Kerfi eins og HerraKrsitinn gerði væri upplagt til þessa.
Eins og Hrafnkell benti á þá var þetta reynt en reynslan var sú að þar sem allt aktivitet var á spjallinu þá fór fólk framhjá forsíðunni og beint á "Nýtt síðan síðast" á sjallinu. Forsíðan var þar með sjálfdauð. Því má það ekki gerast aftur. Það þarf allt að vera það aðgengilegt og þú átt alltaf að geta komist þangað aftur úr spjallinu.
Jájá, nóg af möguleikum (og FlaskBB lítur nú bara krúttlega út).gosi wrote:Svo er líka til FlaskBB fyrir þá sem fíla Flask meira en Django
Næs hugmynd!gosi wrote:Á facebook eru menn að tala um #alltaðgerjast hastagið. Væri ekki hægt að birta kannski myndir frá instagram eða facebook, kannski 10 nýjustu eða eitthvað.
æpíei wrote:nýjir póstar á spjallþræði, sem þú hefur ekki séð áður.
Ég verð að stoppa og benda á eitt leiðinlegt. Þegar ég segi að það sé hægt að búa til yfirlit yfir "nýja pósta" (eða "nýja þræði"), þá meina ég þá þræði sem eru nýir á spjallborðinu sem heild, ekki óséða pósta per notanda.Eyvindur wrote:Ef ég sæi óséða pósta á forsíðu myndi ég frekar fara þangað en beint inn á spjallborðið, og þá myndi ég sjá allt hitt.
Hljómar sniðugt og gerlegt - en eins og ég nefndi, þá veit ég persónulega ekki hvernig maður fer að því að hræra í lúkkinu á spjallborðinu. En ef einhver þorir að fikta, þá styð ég það fullkomlega.Eyvindur wrote:Ég hef svo reyndar lengi talað fyrir því að það ætti að koma upp hliðardálki á spjallið, þar sem hægt væri að auglýsa viðburði, birta fréttir, nýjustu fræðigreinar, o.s.frv., fyrir þá sem munu áfram fara beint inn á spjallborðið.
Það eru til tilbúin template fyrir phpBB sem styðja svona. Líklega einfaldasta leiðin. Staðir eins og Rockettheme og fleiri eru með allskonar lausnir sem geta eflaust virkað vel.Ernir wrote:Hljómar sniðugt og gerlegt - en eins og ég nefndi, þá veit ég persónulega ekki hvernig maður fer að því að hræra í lúkkinu á spjallborðinu. En ef einhver þorir að fikta, þá styð ég það fullkomlega.Eyvindur wrote:Ég hef svo reyndar lengi talað fyrir því að það ætti að koma upp hliðardálki á spjallið, þar sem hægt væri að auglýsa viðburði, birta fréttir, nýjustu fræðigreinar, o.s.frv., fyrir þá sem munu áfram fara beint inn á spjallborðið.
Gæti verið þetta hér https://wordpress.org/plugins/website-toolbox-forums/Eyvindur wrote: Annars hef ég séð Wordpress membership síður með spjallborðum þar sem maður þarf bara að logga sig inn einu sinni til að komast í alla virkni - bæði spjallborð og aðrar, læstar síður. Það er væntanlega einhvers konar membership site plugin sem er svo samkeyrt við eitthvað Wordpress BB. En ég þekki það ekki nógu vel.