[Til Sölu] Bjórpottur með hringrás

Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Post Reply
Tor
Villigerill
Posts: 4
Joined: 10. Aug 2015 11:46

[Til Sölu] Bjórpottur með hringrás

Post by Tor »

Ætla að losa mig við bruggdótið mitt í bili.

Það samanstendur af:
-36L riðfrír pottur frá Fastus með kvarða að innan,
-3500w element,
-Riðfrír krani og hæðarglas. Hæðarglasið sést ekki á myndinni, ég tók það af síðast til að þvo.

-Innri pottur með gatabotni sem hvílir ofan í pottinum á meðan mesking er í gangi. Dælan er tengd við kranann og hringrás er í gangi alla meskinguna. Virtinn síast svo í gegnum kornið og hringrásin heldur áfram. Allt riðfrítt. Ótrúlega þægilegt að nota innri pottinn því hann snertir ekki elementin og eftir meskingu hvílir hann ofan á pottinum á meðan lekur úr korninu. Mjög þægilegt að nota til að hafa hringrás á virtinum og skolar kornið eins vel og hægt er.
Þó svo potturinn sé ekki nema 36 L er hægt að gera slatta af bjór í honum með því að meskja með minna vatni og bæta vatni í eftir meskingu með því að skola kornið með meira vatni.

-12v dæla með straumbreyti.
-PID hitastýring (ónotað)
-SSR með heat sink (ónotað)

Fer allt á 70.000kr
Attachments
8__1443290435_46.182.188.11.jpg
7__1443290409_46.182.188.11.jpg
6__1443290344_46.182.188.11.jpg
5__1443290320_46.182.188.11.jpg
4__1443290298_46.182.188.11.jpg
3__1443290283_46.182.188.11.jpg
2__1443290261_46.182.188.11.jpg
20150925_170422__1443290175_46.182.188.11.jpg
Last edited by Tor on 13. Oct 2015 16:31, edited 1 time in total.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: [Til Sölu] Bruggpottur með dælu

Post by Eyvindur »

Myndirðu íhuga að selja hólkinn sér?
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Tor
Villigerill
Posts: 4
Joined: 10. Aug 2015 11:46

Re: [Til Sölu] Bruggpottur með dælu

Post by Tor »

Nei, því miður, ekki hólkinn sér. En þú getur fengið pottinn og það sem fylgir honum (elementið, kraninn, hæðarglasið) og hólkinn á 45.000.
Verður eginlega að hafa dælu líka svo hólkurinn komi að gagni en þú átt hana kannski þegar.
thmarg
Villigerill
Posts: 4
Joined: 17. Aug 2014 23:12

Re: [Til Sölu] Bruggpottur með dælu

Post by thmarg »

Sæll geturu tekið frá fram á mrg 29 september?
Tor
Villigerill
Posts: 4
Joined: 10. Aug 2015 11:46

Re: [Til Sölu] Bruggpottur með dælu

Post by Tor »

Blessaður. Já ekkert mál. Ég er reyndar ekki við fyrr en á sunnudag eða mánudag þannig að þetta verður að bíða þangað til hvort sem er. Heyrumst um helgina! :)
Tor
Villigerill
Posts: 4
Joined: 10. Aug 2015 11:46

Re: [Til Sölu] Bruggpottur með dælu

Post by Tor »

Græjurnar eru enn ekki farnar og eru til sölu!
dagurhalldors
Villigerill
Posts: 1
Joined: 2. Feb 2016 19:26

Re: [Til Sölu] Bjórpottur með hringrás

Post by dagurhalldors »

En til sölu?
Post Reply