Ég er eflaust að horfa alltof mikið á smáatriðin en ég er að reyna að gera equipment prófíl fyrir plast-suðutunnuna á Brew. Þetta er miðað við 21L og ekkert "top up water".
Svo er leðjan mismikil eftir því hversu mikla humla ég nota þannig að það er breytilegt. Ég set mynd með þar sem print-out´ið gefur takmarkaðar upplýsingar.
Ég var held ég kominn með nokkuð nákvæman prófíl með plasttunnunni áður en ég fékk stálpottinn:
33l.png (32.59 KiB) Viewed 44553 times
Ég tók eftir að þú ert með ekki nema 1,8L í boiloff rate. Fyrir mér er þetta mikilvægasta talan ef maður á að geta notað þetta tól eitthvað. Ég var með fötu frá brew.is með 2x elementum. Ef elementin voru bæði í gangi alla suðuna þá var ég með 6L á klukkustund í boiloff.
50l.jpg (104.61 KiB) Viewed 44553 times
Í gerjun: Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited Hans Klaufi á FB
Það slær allt út hjá mér ef ég er með bæði elementin í gangi það tekur því allt lengri tíma fyrir vikið og minna boiloff. Það flakkar líka mikið eftir því hversu mikið op er á milli loksins og fötunnar. Stundum tek ég það af í smá stund og set það aftur á.
busla wrote:Það slær allt út hjá mér ef ég er með bæði elementin í gangi það tekur því allt lengri tíma fyrir vikið og minna boiloff. Það flakkar líka mikið eftir því hversu mikið op er á milli loksins og fötunnar. Stundum tek ég það af í smá stund og set það aftur á.
Er ekkert aukabragð (DMS) ef þú sýður með lokið á?
Úr "How To Brew (John Palmer)":
Once you achieve a boil, only partially cover the pot, if at all. Why? Because in wort there are sulfur compounds that evolve and boil off. If they aren't removed during the boil, the can form dimethyl sulfide which contributes a cooked cabbage or corn-like flavor to the beer. If the cover is left on the pot, or left on such that the condensate from the lid can drip back in, then these flavors will have a much greater chance of showing up in the finished beer.
Í gerjun: Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited Hans Klaufi á FB
Já, ég tek bara fram hvað verður eftir í gerjunartunnunni því það er eina sem ég tekið eftir að skiptir máli.
Einnig er hægt að breyta því eftir á til að fá réttar tölur, t.d. ef maður er að þurrhumla til andskotans þá bætast við einhverjir lítrar í fermenter loss. Setur það inn í prófílinn í uppskriftinni (t.d. 4L í stað 2L) og þá breytist bottling volume --> sem leiðir að sykurútreikningar fyrir priming verður réttur.
Ég hef það default 2L því það á við með flesta bjóra sem ég hef gert.
Í gerjun: Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited Hans Klaufi á FB
Ég var að ná í Beersmith og er að skoða mig um og reyna að átta mig á þessu forriti.
Myndirnar sem voru settar í upphafsinnleggið eru horfnar, er einhver með mynd af því hvernig prófíllinn fyrir þessa týpísku suðutunnu ætti að líta út ?
Þetta er fín byrjun, en nákvæmast væri að mæla magn af vökva í pottinn þinn, sjóða í klukkutíma og mæla hvað er eftir. Boiloffið er þa mismunurinn. Þetta er sennilegra sniðugra en að nota tölur frá öðrum því elementin geta verið mjög mismunandi. Ég fékk amk aldrei rétt boiloff fyrr en ég hreinlega gerði þetta fyrir minn pott (sem er tunnan frá brew.is)
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið