Ég er með 15. desember. Bjórinn er bruggaður 16. nóvember, fer ekki almennilega í gang fyrr en 19. nóvember (var fyrst með blautger sem var eitthvað slappt) og settur á flöskur í gær, 25. nóvember, milli 18 og 19
Hann fékk sem sagt engan veginn nægan tíma og verður eflaust ekki mjög fallegur á að líta, en sjáum hvað setur. Hann hefur örugglega mjög gott af því að fá að vera við stofuhita eins lengi og mögulegt er.
Annars þakka ég fyrir mig, meiriháttar framtak og ég hlakka mikið til að smakka bjórinn ykkar!
Skiptin í gær tókust með eindemum vel. Allir bjórar skiluðu sér og sjálf skiptin á 961 flöskum tóku aðeins 45 mínútur með góðri aðkomu allra viðstaddra. Næsta ár gengur þetta eins og smurð vél.
Listinn í upphaflega póstinum hefur verið uppfærður. Nú er bara að láta sig hlakka til 1. des til að fá að smakka á þeim fyrsta.
Þarf að bíða þangað til 20. Desember til þess að fá að byrja á þessu. Þarf að taka ca. 3 á dag að meðaltali til að ná öllum fyrir áramót, eða hella í mig kippu á dag í fjóra daga og vera síðan rólegur með einn á dag eftir það. Er mjög spenntur allavega!
Nú er 1. des runninn upp og loks getum við fengið að smakka á bjórunum. Eins og þið hafið eflaust séð þá notum við Facebook til að birta mynd af bjór dagsins. Það voru þeir Jói og Runólfur sem riðu á vaðið með glæsilega flösku af IPA sem sett er í skemmtilega umgjörð hannaða af Sigurjóni Hollywood grafíker. Það eru margar glæsilegar flöskur þarna svo það verður gaman að skoða dagatalið sitt á hverjum degi.
Þó eru nokkrar flöskur ekki með miða. Fyrir þær þá munum við nota mynd af staðlaðri flösku. Við viljum hins vegar gefa þeim sem ekki settu miða á sína flösku tækifæri á að skreyta sitt eintak og senda inn mynd til okkar á fagun hjá fagun.is. Vinsamlegast takið myndina við einlitan bakgrunn og við sjáum um rest!