æpíei wrote:Það væri áhugavert ef þú segir hvernig þú súrmeskir með skyri. Hvað ertu að ná langt niður í ph?
Set einn ofninn í húsinu á fullt.
Sýð 1l af vatni með 100g af dme í sirka 10m sem ætti að vera sirka 1040 SG starter.
Kæli niður í sirka 35°.
Bæti ógerilsneyddu skyri úti starterinn sirka 0.2l.
Læt starterinn svo standa við hliðiná heita ofninum svo þetta sé í kringum 35° þangað til mér finnst hann nógu súr(2-3 daga).
Svo er bara að skella þessu útí.
Á ekki ph mæli svo ég hef ekki hugmynd um ph gildin, enn þetta hefur verið ná því sýrustigi sem ég vill(sem er reyndar frekar milt) í berliner weisse á svona 1-2 dögum.
Tek það fram að þetta er mjög líklega ekkert mjög góð aðferð til að gera lacto starter enn þetta dugar mér og ég þurfti ekki að kaupa nein tæki.
Ef einhver hefur áhuga á að lesa sér meira til um lacto startera er
milk the funk wiki og
þessi guide góður staður til að byrja.