Hér er minn bjór í jóladagatalinu.
Það leit nú á tímabili út fyrir að ég gæti ekki tekið þátt þar sem það tók aðeins lengri tíma en ég hélt að koma sér fyrir eftir flutning á klakann, en hann Siggi (æpíei) formaður kom mér til bjargar og tryggði að ég væri með í ár.
Uppskriftin er einföld:
Batch Size (fermenter): 6.34 gal
OG: 1.042 SG
FG: 1.010 SG
Estimated IBU: 6.0 IBUs
Boil Time: 15 Minutes
Ingredients:
------------
Amt Name Type # %/IBU
2.00 kg Pilsner (2 Row) Ger (2.0 SRM) Grain 1 50.0 %
2.00 kg Wheat Malt, Pale (Weyermann) (2.0 SRM) Grain 2 50.0 %
40.00 g Hallertauer Mittelfrueh [2.70 %] - Boil Hop 3 6.0 IBUs
1.00 Items Whirlfloc Tablet (Boil 5.0 mins) Fining 4 -
0.50 tsp Yeast Nutrient (Boil 5.0 mins) Other 5 -
2.0 pkg Safale American (DCL/Fermentis #US-05) Yeast 6 -
100 g Nelson Sauvin - Dry hop 4 days
Bjórinn var súrmeskjaður niður í 3,63, áður en hann var soðinn með Hallertauer humlunum í 15 mínútur.
Eftir það var hann svo gerjaður með 2 pökkum af US-05, áður en hann var þurrhumlaður með 100 gr af Nelson Sauvin í 3-4 daga.
Nafnið dregur hann af einmitt af lyktinni, en súrleikinn og nelson humlarnir minna margt saman á hvítvín, en hvítvínum frá Nýja-Sjálandi er oft lýst að þau hafi angan af kattapissi og gæsaberjum
Þeim sem þykir hann of súr gætu prófað að bæta smá sýrópi af einhverri gerð útí til að gera hann sætari.
Umræður um bjórinn á Facebook eru hér