Sick of watching a forum for posts about upcoming events? Too lazy to attend monthly meetings or too busy drinking to pay attention? The Calendar for Fágun is now available for easy integration with your iPhone, android phone, or desktop calendar app.
Simply read this post on your device, and click the link below to add this google calendar to your calendar
Fyrir þá sem eru haldnir þeirri fötlun að vera með Windows Phone, eins og ég, þá er hægt að tengja iCal við Outlook.com accountinn sem þú væntanlega ert nú þegar að nota sem notanda á símanum þínum: http://windows.microsoft.com/en-us/wind ... -subscribe" onclick="window.open(this.href);return false;
Tengja, synca og allt virkar eins og það á að gera.
Áhugavert. Það er enginn viðburður á dagtalinu þann 7. júlí. Það var þannig áður en þú gerðist áskrifandi að því. Hvað með ágúst? Þá ætti sama staða að koma upp, því ágúst fundurinn mun ekki vera á fyrsta mánudegi í ágúst, sem er frídagur verslunarmanna. Það er búið að færa þann fund til baka í dagtalinu um viku.
Mér dettur helst í hug að þetta sé galli í dagatali Google. Þegar viðburður er settur upp þannig að hann endurtaki sig sjálfkrafa á fyrirfram ákveðnum tíma (1. mánudagur hvers mánaðar), en einstaka viðburði er breytt, þá komi sjálfkrafa viðburðurinn áfram fram hjá sumum þó hann ætti ekki að gera það. Gæti verið tengt ákveðnum tækjum, eða hvenær þú gerist áskrifandi. En hvort heldur það er þá er ljóst að það er ekki hægt að nota þessa sjálfkrafa endurtekningu viðburða. Við verður að aðlaga okkur að því.
Þetta dagatal er eitthvað að stríða okkur. Það lítur út fyrir að ef viðburður er á endurtekningu, en einstaka viðburði er breytt, þá meðhöndli sum tæki það rangt eða alls ekki. Við erum því búin að setja inn alla viðburði til áramóta aftur. Mánaðar fundir eru áætlaðir 14. júlí, 11. ágúst og 1. september.
Minnum á að þetta dagatal er enn í gildi. Fylgið eftir leiðbeiningum í upprunalega póstinum til að setja upp dagtal á símann, spjaltölvuna eða förtövluna og sjáið alla viðburði Fágunar.
Google hefur tilkynnt að HTML útgáfan verði ekki lengur virk. Það var boðið upp á þá útgáfu í byrjun, þó svo mælt hafi frekar verið með iCal. Þau sem settu HTML upp hjá sér (líklega ekki margir) ættu því að skipta yfir í iCal útgáfuna.