Nú eru réttar 4 vikur til Menningarnætur og kútapartýs Fágunar á Klambratúni. Því er ekki seinna að vænna að fara að brugga fyrir það. Ég hvet alla til að huga að því sama og fara að setja í svo sem eins og einn kút. Sjá hér
Ég ætla að gera létta tilraun með einn kút. Forsagan að þessu er bjór sem ég fékk hjá kunningja mínum, bruggmeistara á 508 Gastro Pub í New York. Hann gerði léttan saison bjór, Grisette, og spækaði hann með sítrónum. Sjá hér hvernig hann lýsti bjórnum:
Upphaflega hafði ég hugsað mér að brugga þennan bjór með gestabruggara sem stakk upp á því að í stað sítróna myndum við nota greipaldin. Ég ætla að halda mig við þá stefnu, setja smá þurrkaðan greipaldin börk í suðuna og svo slatta af greipaldin kjöti í gerjunartakninn síðustu vikuna.
Uppskriftin sem ég gerði upp úr þeim upplýsingum sem ég hafði er eftirfarandi:
23 lítrar, alc 5,4%, IBU 31
5,25 kg Pilsner malt
20 g Columbus (Tomahawk) 14% - 60 mín
10 g þurrkaður greipaldin börkur - 10 mín
20 g Hall Hersbrucker 2% - 2 mín
W3711 Frensch Saison 1 líter starter
300 g greip aldin kjöt - 7 dagar
Fyrst á dagskrá er er að þurrka smá börk. Ég hef aldrei gert svona nokkuð áður en ætla að fylgja þessu hér. Ég kem með uppfærslu af því hvernig gengur hér að neðan.