Ef ég ætti að skipta mér smá af, þá myndi ég leggja til nokkur atriði sem einfalda skipulagninguna við móttöku, skiptingu og skil:
- Merkja tappann með númeri dags. Önnur merking á flöskum er frjáls. Hægt er að styðjast við planið í þessum þræði til að sjá hvaða bjór er hvern dag ef ekkert kemur fram um það á flöskunni, en betra væri náttúrulega að hafa flottan miða
- Merkja kassa að utan með númeri. Nota 24 flösku kassa utan af bjór sem fæst hjá ÁTVR.
- Við skil er kössum raðað nokkurn veginn í númeraröð. Eða grúppa kössum með svipuð númer saman, t.d. 1-8, 9-16, 17-24, 25-31 hver í sína stæðu.
- Þegar skilafrestur er liðinn þurfa sjálfboðaliðar að útbúa kassa þar sem flöskum er raðað í hvern kassa í númeraröð 1-31. Það má ekki afhenda neinar flöskur út fyrr en því er lokið.
- Þátttakendur fá svo flöskur aftur í sínum kössum með sínu númeri. Þannig er tryggt að allir fái rétt til baka.
- Ef það vantar einhver númer þá verða þátttakendur sjálfir að sjá um að fylla í þau er heim kemur. Það verður ekki leyfilegt að skila eftir kl. 18:00 þann 25. nóvember.