Næsti fundur verður með óhefðbundnu sniði.
- Fundurinn verður haldinn heima hjá æpíei að Oddagötu 6 101 Reykjavík.
- Gefst þá tækifæri til að skoða bruggræjurnar og annað bjórtengt hjá formanninum.
- Fundurinn hefst um 6 leitið og er fólki bent á grípa sér eitthvað að borða áður en mætt er því veitingar á staðnum verða aðeins í fljótandi formi.
- æpíei mun vera með IPA á kút og líklegast eitthvað spennandi á flöskum.
- Boðið verður upp á keppnisbjórana úr síðustu keppni sem dómnefndin náði ekki að klára.
- Að sjálfsögðu hvetjum við alla til að mæta með smakk af sínu heimabruggi.
Þokkalegasta mæting var og stemmingin í hópnum nokkuð góð.
Mættir: Plammi, æpíei, helgibelgi, Bjarki, Sigurjón