Jæja krakkar
Þá er maður búinn að prufa að gera all-grain ger starter og allt af því að Hrafnkell vill ekki panta eitt, já aðeins eitt, bretti af DME...
Gúgglaði þenann gaur, stal og stílfærði:
* Smellti 1,5l af vatni í pott og hitaði upp í 72 °C
* Setti nýja ofursmáa BIAB pokann minn í pott.
* Bætti við 350gr. af pale malt sem gaf mér svo aðeins of hátt FG þannig að ég myndi líklega hafa grömmin 300 í næsta roundi.
* Eftir að hafa hrært þessu saman var hitinn á milli 66 og 67 °C. Ég var að miða á 64 en... meh.
* Smellti herlegheitunum inn í ofn sem ég hafði hitað í rúmlega 50 °C. Ofninn minn sýnir bara 50 og svo 100 og ég var eitthvað rúmlega 50.
* Mesking var örugglega 80 mínútur og þegar ég tók pottinn út var hitinn kominn niður í 62°C. Hita ofninn aðeins betur næst
* Hitaði 1l. af vatni í öðrum potti í 78°C fyrst að ofninn hafði ekki betur við.
* Smellti pokanum yfir og lét sitja í 10 mín. Tók ekkert sérstaka hitamælingu þarna.
* Tók pokann upp úr, þjarmaði aðeins af honum og blandaði svo herlegheitunum saman.
* Sauð í smá tíma og komst að því að líklega slær þessi aðferð stóra pottinum mínum við hvað varðar nýtingu því FG'ið töluvert of hátt
* Þynnti, sauð, kældi, pitchaði og núna er þetta að anda úti í skúr á stir-plate'inu.
Og mig langar aldrei aftur að gera þetta aftur.
Þetta tekur alltof langan tíma fyrir heila 2 lítra af 1.040 (+-) virti.
Næst væri ég bara til í að gera 20l. lögun og tappa þeim á eitthvað patent og eiga bara í kæli...
Einhverjar hugmyndir hvað er patent fyrir þetta?
Eftir alla plastbrúsaumræðuna á spjallinu þá langar mig næstum því bara að skola 10 * 2l. gosflöskur, sótthreinsa og eiga svo í svona.
Geta síðan kippt út einni flösku, komið henni upp í stofuhita og mixað á nó tæm við ger næstu bruggunar.
What d'ya say?
Madness or ingeniousness ?