Á síðasta mánaðarfundi Fágunar gáfu þeir Helgi Þórir (helgibelgi) og Björn Unnar (bjorninn) kost á sér í keppnisnefnd. Auk þeirra er Valgeir bruggmeistari Borgar í nefndinni og verður hann yfirdómari keppninnar eins og undanfarin ár. Þeir þrír munu mæta á mánaðarfundinn 2. febrúar á Hlemmi Square og kynna keppnina nánar. Ef aðrir vilja bóða sig fram í nefndina þá er upplagt að hafa samband við þá Helga og Björn, eða mæta á fundinn 2. febrúar.
Á fundi keppnisnefndar var ákveðið að gefa notendum þessarar síðu kost á að ákveða hvaða bjórstíll verður í sérflokkinum 2015. Í ljósi þess að tíminn er naumur fram að keppni voru eftirfarandi stílar álitnir heppilegir:
- Belgískir trapist bjórar, þ.e. blond, dubbel, trippel og quadrubbel. Ath. ekki villigerjaðir bjórar. Sjá nánar hér
Enskir pale ale, ESB eða bitterar. Sjá nánar hér
Hveitibjórar sem innihalda a.m.k. 50% hveitimalt, t.d. weissbeir og wit bjórar. Sjá hér, hér og hér
Saison bjórar. Sjá hér
Nánar verður tilkynnt skil, staðsetningu og slíkt er nær dregur. Góða skemmtun