Veit einhver hvar hægt er að kaupa mjúk kopar rör í metratali? Ég ætlaði að græja kælispíral, en veit ekki hvar hægt er að nálgast kopar rörin. Ekki til í Byko eða Húsasmiðjunni. Ég tékkaði á Efnissölu GE Jóhannessonar, en þar er bara selt í heilum rúllum og það er aðeins meira en ég þarf. Ég veit að Hrafnkell er að selja tilbúnna kælispírala en ég ætlaði að leggja í um helgina og það er ekki opið hjá honum fyrr en eftir helgi.
Hjálp!
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Sigurjón wrote:Veit einhver hvar hægt er að kaupa mjúk kopar rör í metratali? Ég ætlaði að græja kælispíral, en veit ekki hvar hægt er að nálgast kopar rörin. Ekki til í Byko eða Húsasmiðjunni. Ég tékkaði á Efnissölu GE Jóhannessonar, en þar er bara selt í heilum rúllum og það er aðeins meira en ég þarf. Ég veit að Hrafnkell er að selja tilbúnna kælispírala en ég ætlaði að leggja í um helgina og það er ekki opið hjá honum fyrr en eftir helgi.
Hjálp!
Ég keypti í efnissölunni um daginn, gat allveg keypt í metravís ekkert vesen..
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
Ég hringdi í efnissöluna og þeir sögðust vera hættir að selja í metravís. Þeir væru bara með 50 metra rúllur.
Þeir bentu mér hins vegar á Vörukaup sem selja í metrum ef þess er óskað.
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Ég fór í efnissöluna (Gesala.is) og gat keypt þar. Reyndar þurfti ég að hitta á mann þar sem fattaði hvað ég var að gera (einhver benti mér einmitt á 50 metrana). Eða reyndar hélt hann að ég væri að fara að eima (og fannst bjórinn vera fyrir aumingja ).
Afrakstur kvöldsinns.
Ég þarf bara að taka lokunina af og setja slöngurnar upp á endana.
Notaði pott til að hringa koparinn utan um og þetta var mun auðveldara en ég hélt.
Núna er allt að verða tilbúið í lögn sem verður vonandi annað kvöld.
Attachments
spirall.jpg (70.17 KiB) Viewed 37836 times
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Ég fékk 5m á 4000þ frá kælivirkni, 10mm. Minn er ekkert sérstaklega fallegur enda gerði ég hann bara með höndunum en hann virkaði frábærlega um helgina
Með slöngum, hosuklemmum og millistykkjum til að geta tengt á eldhúsvaskinn endaði hann rétt undir 6þ