Sæl öll,
Ég heiti Friðrik og er nýkominn af stað í þetta sport - bruggaði reyndar rauðvín fyrir mörgum árum með græjum frá Ámunni en undanfarin misseri hef ég verið að koma mér upp áhuga á bjórgerð. Hef fylgst með nokkrum í kringum mig sem eru komnir á fullt í þetta og tók semsagt af skarið fyrir ca mánuði síðan.
Fékk mér BIAB byrjunarpakkann hjá brew.is og að auki kælispíral. Fyrsta lögn var því Bee Cave sem fylgir með í pakkanum og gekk ágætlega, engin sérstök vandræði önnur en að læra betur á að stýra hitanum í suðutunnunni. OG örlítið minna en samkvæmt uppskrift. Þetta fór svo á flöskur eftir tvær vikur og er núna búið að vera tæpar tvær vikur á flöskum. Búinn að smakka tvisvar og nokkuð sáttur með útkomuna, tær og fínn bjór með ágætri kolsýru en kannski full litlum haus fyrir minn smekk. Á að vera rúm 5% skv uppskrift en er líklega um 4,7% hjá mér miðað við mælingu.
Tók líka Zombie Clone frá Hrafnkeli með byrjunarpakkanum og var að bottla hann um daginn. Veit ekki alveg hvað veldur en ég fékk talvert minni nýtingu úr honum en með Bee Cave-inn. Munar örugglega 2 lítrum eða svo. Hann er búinn að vera 4 daga á flöskum þannig að ég stelst líklega í eitt smakk fljótlega
Nú er ég svo með Vivian Leigh frá Hrafnkeli og Porter klón í gerjun og er með nokkrar aðrar uppskriftir í huga - sýnist ég ekki eiga afturkvæmt úr þessu !