Í ljósi umræðna um áfengislög á Íslandi og frumvarps til breytinga á þeim langar mig að spyrja hvort að í þessari umræðu séu einhver tækifæri fyrir Fágun að fara út í einhvern lobbýisma.
Lögin okkar segja nefnilega, meðal annars, í 2. gr.
Er ekki kjörið að nota þennan meðbyr með frjálsari áfengislöggjöf og beita gríðar fjársterkum lobbýistaarmi Fágunar í að fá svipuð heimabruggunarlög og þeir eru með í Danmörku?Lög Fágunar wrote: Tilgangur félagsins er að:
[...]
* Berjast fyrir rýmri og skýrari lögum um heimagerða gerjaða drykki, óbrennda.
Af hverju Danmörku?
Af því að þetta wiki segir:
"Homebrewing: Legal. No limit per household per year of beer, given that it is for personal consumption."
Næstum jafn gott: Ungverjaland með "1000 litres of beer per person per year may be produced without taxation, but notification of the local customs office is necessary. Larger quantities are taxed according to law."
Meira að segja Noregur er með þetta "Legal for personal use only."
Hvað segið þið?
Þekkið þið ekki einhvern á þingi sem er til í einn hjemmelavet øl og smá spjall ?