Ég lenti í örlitlu ævintýri með American Brown Ale sem er í gerjun núna sem mig langaði að deila með ykkur.
Bjórinn sjálfur er vel innan stíls (OG-1051, 35ibu, 20srm) og mesking og suða gékk mjög vel.
Svo kom að gerjuninni. Virturinn var kældur niður í sirka 19°C og fleytt á fötu, sirka 24L. Ég bleytti upp í gerinu (US-05 þurrger), hellti í fötuna, vatnslá á og inn í rúmlega 16°C geymslu. Allt vel innann marka gersins.
En 48 tímum seinna þá var nánast ekkert búið að gerjast. Minnir að ég hafi mælt gravity um 1049, smá slef af geri flaut ofan á virtnum og vatnið í vatnslásnum hafði varla haggast.
Fyrr um daginn hafði ég farið til Hrafnkels til að versla auka pakka af US-05 en afvegaleiddist aðeins og endaði með að kaupa smáþyrlu sem afmælisgjöf til vinar míns (ekkert lítið skemmtileg græja) en ekkert ger.
En ég dó ekki ráðalaus því ég lumaði á S-04 pakka og, gegn ráleggingum internetsins að repitcha ekki með öðrum strain, skellti því útí. Og viti menn, nú er búið að bubbla eins og enginn sé morgundagurinn í rúmlega sólarhring og er enn að, þó aðeins sé byrjað að hægja á.
En hvað gerðist? Hvers vegna fór gerjunin ekki af stað með fyrra gerið? Og hver er kvaðratrótin af 1764?
Hér er mín kenning:
Ég bleyti nánast alltaf upp í þurrgeri. Ferlið hjá mér er nokkurnvegin svona:
- Sýð smá vatn, oftast bara í hraðsuðukatli og sótthreynsa litla krukku (250ml mynnir mig)
- Hálffylli krukkuna með vatninu og set gamaldags hitamæli í krukkuna
- Kæli vatnið niður í 37°C með því að láta krukkuna í disk og læt kalt vatn renna um krukkuna
- Gerið fer í og ég bíð í 15min
- Hrist upp í gerinu og beðið í aðrar 15min og svo pitchað
Þá spyr ég, er 45°C nóg til að drepa alveg gerið, eða sjokkerast gerið það mikið að lagg tíminn verði >48tímar en það ætti að taka við sér á endanum?
P.s. Ég mun að sjálfsögðu koma með update um ástandið um leið og tölur berast.