Annars er fyndið að sjá þá auglýsta sem leið til að spara. Þá er líklega horft framhjá stofnkostnaðinum sem er talsverður. En maður hlýtur að fagna hverju tæki sem gefur ölllum tækifæri á að prófa sig áfram í heimabruggun á einfaldan og þægilegan máta.
Það væri líka forvitnilegt hvað það eru komnar margar "world's first" svona græjur á kickstarter og indiegogo undanfarið ár eða svo. Þær eru sennilega fleiri en 5
flott græja, ábyggilega mikið lagt í þetta. en þetta er einmitt full mikið af því að "gera ekki neitt" þótt ég sé mjög hlinntur sjálfvirkni, þá tekur full sjálvirkni alla skemtunina úr heimalögðum bjór, ef maður fær ekkert að gera.
Ég er sammála að ég myndi ekki vilja svona græju, en skil samt alveg hvers vegna sumir myndu vilja það. Fólk sem hefur áhuga á uppskriftaþróun en finnst sjálft bruggferlið leiðinlegt, til dæmis.
Við erum öll svo ólík.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór