Þú getur líka notað Immersion chiller (IC) til að hita upp vatnið fyrir meskjun
Ef ég er að flýta mér, þá hendi ég IC út í meskivatnið og læt heitt vatn renna um hann, sem og hef auðvitað kveikt á hitaelementinu á sama tíma.
Ég er þá alveg hryllilega fljótur að hita vatnið upp í meskihita
EDIT:
Brew.is tók inn nokkra Blichmann Plate chillers sem hafa verið seldir, svo það er reynsla af því á klakanum.
Það þarf auðvitað pumpu til að geta notað plate chiller.
Hvað ertu annars lengi að kæla með þínum IC, með öflugum IC og pumpu/hræra þá áttu alveg að komast í 10-20 mín auðveldlega. Maður hefur séð suma fara niður í 5 mín með IC meiraaðsegja.
Það er frekar töff whirlpool lausn hérna:
http://www.mrmalty.com/chiller.php" onclick="window.open(this.href);return false;
En það þarf að nota pumpu til að geta fengið þetta whirlpool