Sæl veriði, Ég er byrjaði í fyrra að brugga úr svona sírópskittum sem ég fékk í ámunni en var aldrei nógu ánægður með útkomuna.
Svo síðasta vetur fékk ég að taka þátt í BIAB aðferðinni hjá Bjarka kunningja mínum og eftir smökkun þá var ekki aftur snúið. Ég kom mér upp græjum og byrjaði á Bee Cave ljósölinu hjá Hrafnkeli sem kom ljómandi vel út, svo núna áðan var ég að láta porter á flöskur með OG 1.054 og FG 1.019 sem gefur ca 4.7% sem mér finnst heldur lítið , kannski eðlilegt?
Annars vil ég koma því á framfæri að þetta er frábær síða með urmul af fróðleik sem gaman er að pæla í.
Kv. Hjalti