Ákvað að selja gamla CFC-inn minn sem ég er búinn að nota fá upphafi og smíða stærri. Ástæðan er sú að ég keypti 230V Chugger Pump í Ameríku um daginn og því var gamli kælirinn orðinn alltof lítill.
Ég notaði eftirfarandi íhluti:
7 metra af 10mm koparröri - Menn voru að lenda í of lítilli kælingu með 12mm. Keypt hjá GESALA, 700 kall meterinn
7 metra af 16mm plastslöngu - Keypti í Húsasmiðjunni, rúmlega 200 kall meterinn
2x T stykki og 2x 1/2" í 10mm minnkun - Keypt í Landvélum. Þurfti sjálfur að bora minnkunina allveg í gegn. 2.800 kall
2x 10mm í 1/2" - Fæst víða, man ekki hvar ég keypti. Nota til að breyta 10mm kopar í 1/2" fyrir camlock hraðtengi.. 1.500 kall
Kúluloki og hraðtengi fyrir garðslöngu - Húsó, 2.000 kall.
Heildar prísinn varð um 12.000 krónur sem er held ég bara nokkuð vel sloppið. Hérna er svo mynd af gripnum:
Og nýja dælan:
Þegar ég var í USA þá keypti ég líka slatta af Camlock hraðtengjum til að nota á silicon slöngurnar. Eins og sést á myndinni þá get ég plöggað úr dælunni beint á CFC-inn, algjör snilld.
Ég prufukeyrði dæluna og spíralinn um daginn þegar ég setti í jólabjórinn. Með því að hafa kalda vatnið í botni og allveg opið fyrir dæluna, þá var ég um 5-7 mínútur að kæla 23L batch úr 100°C beint niður í 18-20°C sem er ótrúlega stuttur tími!! Áður fyrr var ég rúmlega 30 mín að kæla, þannig að nýju græjurnar stytta bruggdaginn enn meir