Ég myndi hafa hitanema hjá dælunni, jafnvel annan ofan í korninu líka. Varðandi hitann, ef vatnið er t.d 68°C í byrjun, svo setur maður kornið út í og endar í 66°C, þá ætti spírallinn og vatnið í ytri pottinum að geta haldið þessu í 66°C þar sem hitatapið ætti að vera mjög lítið. Ég myndi sennilega bara hræra sjálfur til að byrja með..helgibelgi wrote:Fyrir meskingu líst mér vel á þetta setup. Hvar myndirðu samt hafa hitanemann? Líka spurning hvernig þú ætlar að halda hitanum jöfnum í meskingu, t.d. með því að bæta við hrærivél sem hrærir í korninu (eða hræra sjálfur í því).
Ætlarðu að nota sama fyrirkomulag í suðu eða ætlarðu að taka þá burtu innri pottinn og fleyta virtinum yfir í stóra? Ég hefði áhyggjur af því að ná ekki nægilega öflugri suðu ef þú myndir halda áfram með innri pottinn og vatn á milli.
Kokkurinn í vinnunni bætir allavega alltaf vatni á ytri pottinn, en það er örugglega til ýmsar útfærslur á því. Það var einmitt pælingin að reyna að þétta á milli pottanna þannig að maður fái í raun vatn+gufu+þrýsting. Já, hafði hugsað mér að nota pokann áfram.hrafnkell wrote:Ég hef töluverðar efasemdir um það að þú náir að sjóða svona. Eru tvöfaldir pottar í eldhúsum ekki með glycol eða eitthvað álíka sem kemst hærra en 100°C? Nema það sé þrýstingur á vatninu í ytri pottinum, og þá ertu kominn í allt annan pakka..
Hvernig ætlarðu að taka kornið frá? Nota poka áfram?
Ég skil pælinguna með þetta, en er ekki alveg sannfærður.
Suðumark methanóls og ethanóls er líka undir 100 gráðum. Þess vegna gengur það með vatni í ytri pottinum.jniels wrote:Ég hef séð landasuðugræjur sem eru svona pottur í potti system, en þær voru ekki með spíral á milli. Bara basic þvottapottur þar sem annar pottur var látinn síga ofan í og turn á honum.
Ég er nokkuð harður á að þú fáir ekki suðu með því að hita með sjóðandi vatni, þó ég hafi ekkert fyrir mér í því annað en að ég haldi það bara. Þarft "aðeins heitara" en sjóðandi vatn til að sjóða meira vatnrdavidsson wrote:Kokkurinn í vinnunni bætir allavega alltaf vatni á ytri pottinn, en það er örugglega til ýmsar útfærslur á því. Það var einmitt pælingin að reyna að þétta á milli pottanna þannig að maður fái í raun vatn+gufu+þrýsting.
Jæja, þetta var ekki algalið, eftir að vatnið í ytri pottinum var búið að sjóða í c.a 5 mín þá var vatnið í innri pottinum, c.a 4 lítrar, komið í 95°C, en engin suða....hrafnkell wrote:
Prove me wrong. Ég bíð með "told you so" póstinn þangað til
Af hverju myndirðu ekki sjóða kopar?gunnarolis wrote:Það eitt að enginn annar hafi gert þetta áður mundi valda mér áhyggjum.
Sjóða með spíralinn oní? Harðplumbaðan stainless spíral?
Ég mundi ekki sjóða með koparspíral ofaní allavegana.
Já ég hef engar efasemdir um að þetta hiti vatn, (mjög) nálægt suðumarki. En suðunni nær maður held ég ekki, sama hvað maður bíður.rdavidsson wrote:Jæja, þetta var ekki algalið, eftir að vatnið í ytri pottinum var búið að sjóða í c.a 5 mín þá var vatnið í innri pottinum, c.a 4 lítrar, komið í 95°C, en engin suða....
Svona til "gamans" þá ákvað ég að senda fyrirspurn á þetta fyrirtæki til að ath hvað þetta myndi kosta með sendingarkostnaði til Íslands:Eyvindur wrote:Ég veit það ekki. Eflaust er hægt að tala við málmsmiðjur. Samt alveg spurning hvort kostnaðurinn yrði jafnvel meiri þannig en með því að panta þetta bara frá BNA.
http://www.utahbiodieselsupply.com/brew ... s.php#biab" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er alveg kostnaður, en kannski réttlætanlegur. Kostirnir eru ótvíræðir.