Mánaðarfundur september 2014 verður haldinn mánudaginn 1. september á Hlemmi Square. Mætin er kl. 20, formleg dagskrá byrjar um 20:30 og lýkur 22:30.
Við kynnum fyrirhugaða ferð í Brugghúsið Steðja þann 13. september. Sætafjöldi er takmarkaður og geta gestir forskráð sig í ferðina á fundinum.
Kynning kvöldins verður hvernig gera á sína eigin "stir plate". Gaman væri ef fundarmenn kæmu með sína smíði og sýndu og segðu frá hvernig hún var gerð.
Við munum afhenda félagsskírteini og minnum á að félagar fá 25% afslátt á barnum á Hlemmi Square, ekki bara á fundunum heldur alla daga.
Að sjálfsögðu verður svo smakkað á heimagerðum drykkum fundarmanna.
-------------------- edit: fundargerð rituð af Plamma
Mættir:
æpíei - kom með
It's Faro in the Morning
Plammi - laumaðist úr úr húsi með brakandi ferskan IPA og
eplacider
helgibelgi - mætti ferskur með Vatnajökul úr framleiðslu Ölvisholts
Classic - lumaði á 2 flöskum af
Chinook IPA (sem var eitthvað pínu funky en samt góður)
Bjoggi - þorði varla að gefa okkur Black IPA (a.k.a. Hoppy little accident) en svo var svona líka magnaður!
bjorninn - hellti í okkur Simcoe SMaSH, hættulega ljúfur, bæði hann og bjórinn.
Funkalizer
Gummi Kalli
Jón Guð
hrafnkell
ernir
Kynntar voru bækur sem sniðugt væri að panta í
hóppöntuninni sem Fágun ætlar að standa fyrir. How to brew, Brewing Classic styles, Farmhouse ales, American sour beers og Extreme Brewing voru þarna fyrir menn að glugga í.
Spjallað var aðeins um
bruggkeppnina sem haldin verður í samstarfi við Steðja.
Formaðurinn kynnti hópferðina til Steðja Brugghúss laugardaginn 13.september. Fyrirhugað er að leggja af stað fyrripart dags og vera komnir heim fyrir kvöldmat. Hugsanlega verður lítið rútugjald rukkað fyrir félagsmenn og þá eitthvað aðeins meira fyrir utanfélaga. Von er á að bruggmeistarinn verði á staðnum. Mönnum gafst svo tækifæri til að forskrá sig á fundinum en hefðbundin skráning hefst á allra næstu dögum.
Næsti mánaðarfundur verður hjá Bergrisa í Keflavík þann 6.okt. Reynt verður að leggja af stað fyrr en í fyrra til að menn lendi ekki í að missa af strætóferðum heim til sýn. Nánar auglýst síðar.
Einnig var minnt á ferð til
Hauggen Grubben sem einnig verður nánar kynnt síðar.
Hrafnkell mætti og hélt smá tölu um Keg-hopping. Þá er hann með sér humlapoka (hægt að nota nælonsokk) sem hann setur 30gr af "eitthverju gotteríi" í og skellir í kútinn. Gott er að þyngja pokann með riðfríium skrúfum til að hann sökkvi í botninn. Næst er kælt og kolsýrt. Pokinn verður svo í þar til bjórinn er búinn (en líklegast ekki gott að vera meira en mánuð), og gefur þetta aukinn ferskleika og þá aðalega humlalyktin sem helst betur og lengur.
Siggi (æpíei) kom svo með skemmtilega kynningu á Stir plates og mætti hann og Helgi (helgibelgi) með sínar hrærur að heiman.
Hér er kominn þráður um málið.
- l0y0UY8l.jpg (30.67 KiB) Viewed 13801 times
- lbamymPl.jpg (38.62 KiB) Viewed 13801 times