Fyrir nokkru fékk ég að smakka á Faro sem er belgískur bjórstíll, ekki mjög útbreiddur. Þessi bjór var frekar mildur, lágt áfengi með örlitlum súrum keim. Ekki kannski ósvipaður saison, svona eins og litli frændi saison. Ég hafði aldrei heyrt um faro áður og þetta vakti áhuga minn. Faro var upprunalega blandaður bjór. Veikir ódýrir bjórar voru settir út í Lambic eða hreinlega þynntir með vatni. Svo var sykri bætt í rétt áður en hann var drukkinn. Útkoman varð súr-sætur bjór, vel drykkjar hæfur.
Þetta er um það bil allt sem ég fann um faro. Ég fann engar uppskriftir eða annað sem gæti hjálpað mér við að gera minn eigin faro. Ég hafði því frekar lítið til að byggja á. Bruggarinn sem gaf mér bjórinn sagðist hafa notað 80% pilsner og 20% hveiti, og humlar voru týpískir evrópskir. Ég ákvað að notast við það. Til að fá sæta keiminn nota ég pakka af candy sírópi. Súra keiminn fæ ég úr WLP644 BRETTANOMYCES BRUXELLENSIS TROIS geri http://www.whitelabs.com/yeast/wlp644-b ... nsis-trois" onclick="window.open(this.href);return false;.
Uppskriftin var því svona:
It's Faro in the Morning (Faro)
24 lítrar, 90 mín suða, ca 70% nýtni
OG 1.050 áætlað ABV 5,6%
IBU 13,6
4,0 kg pilsnermalt
1,0 kg hveitimalt
1 pk candi syróp D-45 15 mín
16 g golding 60 mín
20 g tettnang 10 mín
10 g tettnang 5 mín
WLP 644 ger 1 líter starter
Ég ákvað að meskja svipað og saison: 50 mínútur við 63, svo 15 mínútur á 68, 15 mínútur 73 og loks 5 mínútur á 78 og skolaði með 5 lítrum. Fékk mjög fína nýtni úr þessu eða 77%. Það er ljóst að ég þarf aðeins að endurbæta BeerSmith prófilínn á tækjunum.
Hann er núna að gerjast við 23 gráður og allt virðist fínt. Ég verð spenntur að smakka þennan eftir ca mánuð, en þó gæti það tekið talsvert meiri tíma að fá inn meira að súrnum úr gerinu. Ég leyfi ykkur að fylgjast með hvernig hann þróast
p.s. nafnið á bjórnum er dálítið langsótt. Einhver sem fattar það?